Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. maí 2022 13:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Landsliðshópurinn: Hákon Arnar og Willum í hópnum
Hákon Arnar
Hákon Arnar
Mynd: Getty Images
Willum
Willum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag tilkynnti landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson hópinn fyrir komandi verkefni karlalandsliðsins. Framundan eru fjórir leikir, þrír í Þjóðadeildinni og einn vináttuleikur gegn San Marinó.

Alls eru 25 í hópnum í þessu verkefni. Síðasta verkefni liðsins var í mars og þeir Atli Barkarson, Andri Fannar Baldursson, Arnór Ingvi Traustason og Jón Daði Böðvarsson eru ekki í hópnum að þessu sinni.

Willum Þór Willumsson er í hópnum ásamt þeim Valgeir Lunddal Friðrikssyni, Hákoni Arnari Haraldssyni, Mikael Anderson og Mikael Agli Egilssyni og Hólmberti Aroni Friðjónssyni. Hákon gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik í þessu verkefni. Patrik á einnig eftir að spila sinn fyrsta landsleik.

Hópurinn:

Markverðir
Patrik Sigurður Gunnarsson - Viking
Ingvar Jónsson - Víkingur R. - 8 leikir
Rúnar Alex Rúnarsson - OH Leuven - 14 leikir

Útileikmenn
Daníel Leó Grétarsson - Slask Wroclaw - 7 leikir
Brynjar Ingi Bjarnason - Valerenga IF - 12 leikir, 2 mörk
Ari Leifsson - Stromsgodset - 3 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - CSKA Moskva - 38 leikir, 2 mörk
Davíð Kristján Ólafsson - Kalmar FF - 4 leikir
Valgeir Lunddal Friðriksson - BK Häcken - 2 leikir
Alfons Sampsted - FK Bodo/Glimt - 10 leikir
Hákon Arnar Haraldsson - FC Köbenhavn
Ísak Bergmann Jóhannesson - FC Köbenhavn - 11 leikir, 1 mark
Willum Þór Willumsson - BATE Borisov - 1 leikur
Þórir Jóhann Helgason - US Lecce - 9 leikir
Arnór Sigurðsson - Venezia FC - 18 leikir, 1 mark
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF - 9 leikir, 1 mark
Birkir Bjarnason - Adana Demirspor - 107 leikir, 15 mörk
Aron Elís Þrándarson - Odense BK - 10 leikir
Mikael Neville Anderson - Aarhus GF - 11 leikir, 1 mark
Jón Dagur Þorsteinsson - Aarhus GF - 18 leikir, 2 mörk
Mikael Egill Ellertsson - SPAL - 4 leikir
Albert Guðmundsson - Genoa - 30 leikir, 6 mörk
Hólmbert Aron Friðjónsson - Lillestrom SK - 6 leikir, 2 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen - Real Madrid - 6 leikir, 2 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen - IF Elfsborg - 12 leikir, 1 mark

Fim 2. júní: 18:45 Ísrael - Ísland (Þjóðadeildin, Sammy Ofer Stadium)

Mán 6. júní: 18:45 Ísland - Albanía (Þjóðadeildin, Laugardalsvöllur)

Fim 9. júní: 18:45 San Marínó - Ísland (Vináttuleikur, San Marino Stadium)

Mán 13. júní: 18:45 Ísland - Ísrael (Þjóðadeildin, Laugardalsvöllur)
Athugasemdir
banner