Fotbolti.net
25.06.15 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Javier Saviola heim til River Plate (Staðfest)

Saviola í leik með Hellas Verona

Saviola í leik með Hellas Verona

Canon

Mynd: Getty Images

Javier Saviola er genginn í raðir River Plate í Argentínu eftir fjórtan ára dvöl í Evrópu.
Saviola sló í gegn með River Plate í upphafi þessarar aldar og var keyptur til Barcelona fyrir 15 milljónir punda þegar hann var aðeins 19 ára gamall. Ferill hans hjá spænska stórveldinu var kaflaskiptur en Saviola gerði 49 mörk í 123 leikjum fyrir Katalóníurisann.

Hann var lánaður frá Barcelona í tvígang en gekk svo í raðir erkifjendanna í Real Madrid. Þar náði þessi lágvaxni Argentínumaður sér aldrei á strik en hann lék nú síðast með Emil Hallfreðssyni hjá Hellas Verona í Serie A.

Saviola hefur nú ákveðið að halda heim á leið og mun ganga í raðir River Plate þegar samningur hans við Verona rennur út í lok mánaðarins.

Hjá River Plate hittir hann fyrir Pablo Aimar, sem gekk nýverið til liðs við félagið aftur en þeir léku saman með liðinu í kringum aldamótin áður en þeir héldu til Spánar.

Þetta eru önnur gleðitíðindi fyrir argentísku deildina á stuttum tíma en mikil tilhlökkun ríkir vegna endurkomu Carlos Tevez í deildina. Hann mun leika með erkifjendum River Plate, Boca Juniors.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.