Fyrri leikur Víkings gegn Egnatia í annari umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar hefst á eftir klukkan 18:45. Víkingur átti síðast leik gegn KA í deildinni þar sem þeir töpuðu 1-0. Byrjunarliðin fyrir leikinn í kvöld eru komin og þetta eru breytingarnar sem Víkingar gera frá þeim leik.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 1 Egnatia
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings gerir fimm breytingar á sínu liði í kvöld. Ingvar Jónsson snýr aftur í markið og Jón Guðni Fjóluson, Pablo Punyed, Erlingur Agnarsson og Nikolaj Hansen koma allir inn í liðið. Pálmi Rafn Arinbjörnsson fær sér sæti á bekknum ásamt Viktor Örlygi Andrasyni, Gísla Gottskálk Þórðarsyni, Halldóri Smára Sigurðssyni og Ara Sigurpálssyni.
Byrjunarlið Víkingur R.:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth
5. Jón Guðni Fjóluson
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
10. Pablo Punyed
19. Danijel Dejan Djuric
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
25. Valdimar Þór Ingimundarson
27. Matthías Vilhjálmsson
Byrjunarlið Egnatia:
12. Ilir Dabjani (m)
4. Zamig Aliyev
6. Albano Aleksi
13. Renato Malota
14. Lorougnon Doukouo
16. Edison Ndreca
19. Arbenit Xhemajli
27. Youba Drame
28. Alessandro Ahmetaj
44. Abdurramani Fangaj
82. Redi Kasa
Athugasemdir