Margrét Lára Viðarsdóttir er með áritaða landsliðstreyju á lottó uppboði og mun allur ágóði renna til Ljónshjarta.
Kostar aðeins 1000kr miðinn og getur þú nælt þér í hann á vefsíðu CharityShirts.
Vinningshafi verður dreginn út í beinni útsendingu á Facebook Live mánudaginn 28. september kl 19:00.
Þetta er engin venjuleg treyja. Heldur er þetta treyjan sem hún lék sinn síðasta landsleik í.
Samtals hefur CharityShirts safnað 2.546.000kr til góðgerðamála í samstarfi við leikmenn.
Athugasemdir