Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 25. september 2021 18:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Allt í skrúfuna hjá Dortmund undir lok fyrri
Zakaria skoraði sigurmarkið.
Zakaria skoraði sigurmarkið.
Mynd: Getty Images
Borussia M. 1 - 0 Borussia D.
1-0 Denis Zakaria ('37 )
Rautt spjald: Mahmoud Dahoud, Borussia D. ('40)

Borussia Dortmund þurfti að sætta sig við tap í lokaleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni.

Dortmund heimsótti Borussia Mönchengladbach og það fór í raun allt í skrúfuna hjá Dortmund undir lok fyrri hálfleiks. Miðjumaðurinn Denis Zakaria skoraði fyrir Gladbach og stuttu eftir það fékk Mahmoud Dahoud, miðjumaður Dortmund, að líta rauða spjaldið.

Hvorki Erling Haaland né Marco Reus voru með Dortmund í dag, þeir eru báðir meiddir. Það var erfitt fyrir gestina að koma til baka án þeirra.

Lokatölur 1-0 fyrir Gladbach sem er í 11. sæti með sjö stig. Dortmund er í fjórða sæti með 12 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner