Fotbolti.net
25.09.26 - 18:04
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið kvöldsins: Mancini kemur á óvart

Zidane stýrir Frakklandi í fyrsta sinn.

Zidane stýrir Frakklandi í fyrsta sinn.

Canon

Mynd: EPA

Það eru nokkrir spennandi slagir sem hefjast von bráðar í Þjóðadeildinni og má sjá byrjunarliðin hér fyrir neðan.
Frakkland heimsækir Tyrkland í fyrsta leik Zinedine Zidane við stjórnvölinn og eru þrír úrvalsdeildarleikmenn í fyrsta byrjunarliði Zidane. Þar má einnig finna tvo leikmenn frá FC Bayern, einn frá PSG, einn frá Barcelona og einn frá Real Madrid.

Rayan Cherki, Adrien Truffert og Maxence Lacroix eru úrvalsdeildarleikmennirnir í byrjunarliði Frakka á meðan Tyrkir eru með einn leikmann úr úrvalsdeildinni - Ferdi Kadioglu bakvörð Brighton. Arda Güler, mikilvægur leikmaður Real Madrid, er í byrjunarliði Tyrkja en Hakan Calhanoglu er ekki með vegna meiðsla.

Ítalía tekur þá á móti Belgíu í afar áhugaverðum slag. Roberto Mancini er mættur aftur við stjórnvölinn hjá Ítalíu sem hefur núna misst af þremur heimsmeistaramótum í röð.

Mancini kemur mörgum á óvart með byrjunarliðsvali sínu þar sem tvítugur Alessandro Romano byrjar inná ásamt Diego Coppola og Nicoló Cambiaghi. Þeir halda mönnum á borð við Davide Frattesi, Gianluca Scamacca og Giorgio Scalvini á bekknum. Romano er að spila sinn fyrsta landsleik, Cambiaghi sinn annan og Coppola sinn þriðja.

Ensku úrvalsdeildarleikmennirnir Riccardo Calafiori og Sandro Tonali eru í byrjunarliðinu, með Michael Kayode á bekknum.

Til samanburðar eru fjórir úrvalsdeildarleikmenn í byrjunarliði Belgíu og tveir á bekknum. Þar má líka finna nokkrar stjörnur úr Serie A þar sem Kevin De Bruyne, Diego Moreira og Charles De Ketelaere eru allir í byrjunarliðinu.

Dominik Szoboszlai og Robert Lewandowski eru í byrjunarliðum Ungverjalands og Póllands sem eiga heimaleiki á meðan Alexander Isak og Viktor Gyökeres leiða sóknarlínu Svía gegn Rúmeníu undir stjórn Graham Potter. Úrvalsdeildarleikmennirnir Hugo Larsson og Gabriel Gudmundsson byrja á bekknum.

Tyrkland: Cakir, Celik, Demiral, Bardakci, Aydin, Özcan, Yuksek, Kadioglu, Uzun, Guler, Yilmaz

Frakkland: Maignan, Kounde, Upamecano, Lacroix, Truffert, Kone, Rabiot, Cherki, Olise, Dembele, Mbappe



Ítalía: Donnarumma, Di Lorenzo, Coppola, Mancini, Calafiori, Romano, Tonali, Barella, Cambiaghi, Kean, Esposito

Belgía: Lammens, Castagne, Mechele, De Cuyper, Ngoy, Tielemans, Raskin, De Bruyne, Moreira, Godts, De Ketelaere



Svíþjóð: Johansson, Holm, Starfelt, Lindelof, Stroud, Bernhardsson, Bergvall, Ayari, Nanasi, Gyökeres, Isak
Coppola var hjá Brighton í fyrra.

Coppola var hjá Brighton í fyrra.

Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið kvöldsins: Mancini kemur á óvart
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið kvöldsins: Mancini kemur á óvart
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið kvöldsins: Mancini kemur á óvart
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.