Fotbolti.net
25.09.26 - 16:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sjáðu stórkostlegt aukaspyrnumark Daníels Tristans gegn Frökkum

Daníel Tristan á PEPSI vellinum í dag.

Daníel Tristan á PEPSI vellinum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Íslenska U21 landsliðið er þessa stundina að spila við það franska í undankeppni EM. Franska liðið er í toppsæti riðlakeppninnar en Ísland er í 3. sæti og ætla íslensku strákarnir að koma sér upp töfluna í riðlinum í síðustu þremur leikjunum.

Mathys Tel kom Frakklandi yfir í fyrri hálfleik en snemma í seinni hálfleik jafnaði Daníel Tristan Guðjohnsen metin með marki úr aukaspyrnu.

„STÓRKOSTLEG AUKASPYRNA! Daníel tekur skotið með hægri fæti. Boltinn flýgur í gullfallegum boga yfir varnarvegginn áður en hann syngur hátt í vinstra horninu, óverjandi fyrir Jaouen í markinu," skrifaði Andri Stefánsson í beinni textalýsingu frá leiknum.

„FRÁBÆRT MARK HJÁ DANÍEL TRISTAN GUÐJOHNSEEEEEEN," hrópaði Rikki G í lýsingu sinni á SÝN Sport. Markið má sjá í spilaranum hér að neðan.

Þegar þetta er skrifað eru rúmar tíu mínútur eftir af leiknum og staðan jöfn 1-1. Markið hans Daníels er hans fjórða í þremur leikjum með U21 landsliðinu. Haukur Gunnarsson tók meðfylgjandi myndir á leiknum í dag.
Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Frakkland U21
Sjáðu stórkostlegt aukaspyrnumark Daníels Tristans gegn Frökkum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.