25.09.26 - 14:32
Elvar Geir Magnússon
Orri Steinn: Tek ábyrgð á því að frammistaða mín í síðustu leikjum hefur ekki verið nægilega góð

Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann hefur ekki spilað á Laugardalsvelli síðan 2024.

Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli á morgun í fyrsta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson svaraði spurningum á fréttamannafundi í dag og var meðal annars spurður út í hvernig byrjunin á nýju tímabili með Real Sociedad hafi verið hjá honum persónulega?
„Það hefur verið upp og niður, ég byrjaði mjög vel fyrstu leikina en svo hefur þetta aðeins farið niður á við. Það er bara eins og kannski gerist á löngu tímabili. Það koma vondir og góðir kaflar. Ég þarf bara að taka ábyrgð á því að frammistaða mín í síðustu leikjum hefur ekki verið nægilega góð. Þetta er langt tímabil og ég mun halda áfram að vinna í mínu og reyna að bæta mig fyrir liðið," svaraði Orri.

TENGT EFNI
Búist við sannfærandi sigri Íslands - „Klárlega sterkasta lið riðilsins“
Öðruvísi fiðrildi í maganum
Ísland ætlar að komast aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar en til að vera öruggt með sæti þar þarf liðið að vinna riðilinn. Við teljum okkur vera stóra fiska í lítilli tjörn og liðið stefnir á að sýna það með frammistöðu sinni á morgun.
„Við höfum talað mikið um þetta strákarnir. Krafan er að við endum efstir í riðlinum og það er eitthvað sem við setjum á sjálfa okkur. Við viljum sýna fólkinu sem mætir á völlinn að við ætlum ekki að stoppa lengi í C-deildinni. Okkur finnst sem við eigum heima í B-deildinni eða ofar. Við getum notað þetta sem tækifæri til að byggja ofan á leikinn og ná í úrslit. Við setjum kröfuna á að vera hærra en í C-deildinni," segir Orri.
Orri hefur ekki spilað á Laugardalsvelli síðan 2024 en meiðsli gerðu það að verkum að hann lék ekkert í undankeppni HM.
„Ég er mjög spenntur. Það er langt síðan ég hef spilað hérna vegna meiðslanna. Að vera aftur hérna með strákunum er geggjað. Það er öðruvísi fiðrildi í maganum þegar maður kemur hingað, fjölskyldan er á vellinum og allir mættir að styðja. Ég vonast til að sjá sem flesta á leiknum. Ég held að íslenska þjóðin viti að við kunnum verulega að meta stuðninginn og við þurfum á honum að halda. Það er geggjað að vera kominn aftur og völlurinn lítur frábærlega út," segir Orri Steinn Óskarsson að lokum.