Fotbolti.net
25.09.26 - 13:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið U21: Nýtt miðvarðapar og ný miðja

Sex breytingar milli leikja

Eggert Aron er fyrirliði íslenska liðsins í dag.

Eggert Aron er fyrirliði íslenska liðsins í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Íslenska U21 landsliðið tekur á móti Frökkum í undankeppni EM 2027 á PEPSI vellinum í Laugardal í dag. Leikurinn hefst 15:00 og er frítt inn á völlinn.

Frakkar eru á toppi riðilsins, Sviss er tveimur stigum á eftir og Ísland er þremur stigum á eftir Sviss. Það er raunhæfur möguleiki á umspili um sæti á EM.

Þeir Lúðvík Gunnarsson og Ólafur Kristjánsson eru þjálfarar liðsins og þeir eru búnir að velja byrjunarliðið. Síðasti leikur liðsins var gegn Frökkum í Frakklandi í lok mars og endaði sá leikur með 2-1 sigri Frakka.
Lestu um leikinn: Ísland U21 0 - 0 Frakkland U21
Frá þeim leik eru gerðar sex breytingar á liði Íslands og miðað við skýrslu UEFA eru þeir Halldór Snær Georgsson, Kjartan Már Kjartansson og Baldur Kári Helgason utan hóps í dag.

Logi Hrafn Róbertsson, Gísli Gottskálk Þórðarson og Róbert Frosti Þorkelsson eru meiddir og því ekki með, Ágúst Orri Þorsteinsson gaf ekki kost á sér, Kjartan Már er utan hóps og Nóel Atli Arnórsson byrjar á bekknum. Inn koma þeir Amin Cosic, Helgi Fróði Ingason, Eggert Aron Guðmundsson, Tómas Orri Róbertsson, Júlíus Mar Júlíusson og Davíð Helgi Aronsson.

Í liði Frakka eru leikmenn eins og Mathys Tel hjá Tottenham og Lesley Ugochukwu hjá Galatasaray.

Þeir Eggert Aron og Tel eru fyrirliðar liðanna í dag.

Byrjunarlið Ísland U21

  • 1. Lúkas Petersson (m)
  • 2. Hlynur Þórhallsson
  • 3. Júlíus Mar Júlíusson
  • 9. Daníel Tristan Guðjohnsen
  • 10. Eggert Aron Guðmundsson
  • 14. Helgi Fróði Ingason
  • 15. Amin Cosic
  • 20. Viktor Bjarki Daðason
  • 21. Tómas Orri Róbertsson
  • 22. Daníel Freyr Kristjánsson
  • 4. Davíð Helgi Aronsson

Byrjunarlið Frakkland U21

  • 1. Ewen Jaouen (m)
  • 3. Sael Kumbedi
  • 6. Valentin Atangana
  • 13. Christian Mawissa
  • 15. Nathan Zeze
  • 21. Jaydee Canvot
  • 7. Mathys Tel
  • 8. Lesley Ugochukwu
  • 9. Jean-Matteo Bahoya
  • 10. Saimon Bouabre
  • 11. Senny Mayulu
Júlíus Mar kemur inn í íslenska liðið og spilar við hlið Davíðs Helga Aronssonar.

Júlíus Mar kemur inn í íslenska liðið og spilar við hlið Davíðs Helga Aronssonar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mathys Tel er fyrirliði franska liðsins.

Mathys Tel er fyrirliði franska liðsins.

Canon

Mynd: EPA

Uppstilling íslenska liðsins á vef UEFA.

Uppstilling íslenska liðsins á vef UEFA.

Canon

Mynd: UEFA/Skjáskot

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Frakkland6+1716
2Sviss7+514
3Ísland7+511
4Færeyjar7-79
5Lúxemborg6-74
6Eistland7-132
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.