24.09.26 - 18:23
Ívan Guðjón Baldursson
Cristiano Ronaldo: Ég veit að þjóðin elskar mig

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo fagnar 42 ára afmæli í febrúar og viðurkennir að þetta gæti verið hans síðasta tímabil eftir ótrúlegan feril sem atvinnumaður í fótbolta.

TENGT EFNI
Ronaldo: Þetta er ekki þráhyggja
Eins umdeildur og Ronaldo hefur verið í gegnum árin þá leikur enginn vafi á því að hann er einn af allra bestu fótboltamönnum sögunnar, og af mörgum talinn sá allra besti. Hann er í byrjunarliði Portúgal sem mætir Wales í Þjóðadeildinni í kvöld þrátt fyrir háan aldur.
„Núna er ég með tvö markmið: að vinna Þjóðadeildina og skora 1000 mörk á ferlinum," sagði Ronaldo, sem er markahæsti fótboltamaður sögunnar með 979 mörk skoruð.
„Ég er ennþá að sanna að ég geti spilað á þessu gæðastigi. Ég þarf að sanna það á hverjum degi og mér líður eins og markaskorunin mín tali sínu máli. Eina sem skiptir mig máli í þessu landsleikjahléi er að sigra."
Jorge Jesus er nýr þjálfari Portúgal og er Ronaldo spenntur fyrir að starfa með honum eftir að þeir störfuðu saman hjá Al-Nassr á síðustu leiktíð. Al-Nassr vann langþráðan deildartitil undir stjórn Jesus, sem ákvað að velja sóknarlínuna sína frá síðustu leiktíð í byrjunarliðið - þar sem Ronaldo byrjar í fremstu víglínu ásamt Joao Félix.
„Ég hef starfað með Jesus og veit að við munum spila meiri sóknarbolta en áður. Það mikilvægasta er að sigra. Ef þið hafið horft á mig spila með Al-Nassr nýlega þá vitið þið að ég get spilað 90 mínútur. Það eina sem ég veit er að ég mun ekki spila 90 mínútur í öllum fjórum leikjunum í landsleikjahlénu, það er öruggt.
„Ég veit ekki hvort þetta sé síðasti kaflinn á ferlinum. Þetta gæti verið mitt síðasta tímabil, en ég veit það ekki. Ég mun halda áfram ef líkaminn og hausinn leyfa mér það. Ég veit ekki hvernig staðan verður eftir tímabilið. Það er margt sem getur gerst."
Ronaldo talaði einnig um 'hatarana' svokölluðu, sem kalla eftir því að landsliðsþjálfarar Portúgal hætti að velja goðsögnina í landsliðið.
„Ég veit að einhverjir njóta þess að ráðast á mig og hafa verið að reyna að 'drepa' mig í áraraðir, en það mun aldrei virka. Ég reyni ekki að hafa stjórn á því sem ég get ekki stjórnað.
„Það sem ég man mest eftir er allt fólkið sem elskar mig. Ég finn fyrir mikilli ást frá portúgölsku þjóðinni og ætla ekki að hætta minni vegferð útaf tylft einstaklinga sem líkar ekki við mig. Ég veit að þjóðin elskar mig."