Fotbolti.net
24.09.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

„Ég hef séð Freysa gera hluti sem ég hef aldrei getað gert á ævinni“

Freyr Sigurðsson

Freyr Sigurðsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarinn Freyr Sigurðsson hefur átt frábært tímabil með Fram í sumar og gæti spilað sinn fyrsta leik með U21-landsliðinu á næstu dögum. Hann hefur bætt ýmsa þætti í leik sínum og segist hafa lært mikið af Brasilíumanninum Fred Saraiva.
Úr varaliði Sindra í U21 á þremur árum - „Á fullt inni"
TENGT EFNI

Úr varaliði Sindra í U21 á þremur árum - „Á fullt inni"

Freyr hefur skorað sex mörk og lagt upp tvö til viðbótar í Bestu deildinni í sumar.

Framarar voru lengi vel í titilbaráttu og hafa tekið miklum framförum á undanförnum árum. Sama má segja um Frey sem hefur bætt sig verulega á þeim tíma.

Eitt af því sem hann lagði mikla áherslu á var að bæta sig í að halda boltanum á lofti og þar hefur hann greinilega náð að soga í sig brasilíska takta frá Fred. Slíkar æfingar geta skilað sér vel inn á völlinn, meðal annars í boltatækni, fyrstu snertingu og samhæfingu.

Freyr þakkar Fred fyrir það sem hann hefur kennt honum á tíma þeirra saman hjá Fram.

„Ætli það sé ekki Fred. Hann hefur kennt mér mikið, t.d. varðandi að halda á lofti, hann hefur verið að kenna mér brasilíska takta. Ég sver það, ég er orðinn miklu betri í að halda á lofti. Fred er snillingur. Fyrir æfingar höfum við verið að halda á lofti, hann er með einhvern brasilískan strandbolta, við höfum verið að sparka á milli og svo eftir æfingar erum við að skjóta og taka fyrirgjafir,“ sagði Freyr við Fótbolta.net.

Fær stórt hrós frá Fred

Fótbolti.net heyrði í Fred og spurði hann aðeins út í þessi ummæli Freys þar sem hann hrósaði honum í hástert og sagði hann efnilegasta leikmanninn í íslenska boltanum.

„Ég sé hann alltaf halda á lofti í ræktarsalnum og gera alls konar brögð sem ég hef aldrei getað gert á ævinni. Þetta er mjög góð leið til að hita upp fyrir æfingu og á sama tíma ertu að bæta tæknina,“ sagði Fred við Fótbolta.net.

Þannig að þú hefur séð hann gera hluti sem þú hefur sjálfur aldrei getað?

„Klárlega. Hann er að leika sér með boltann, fara þrisvar eða fjórum sinnum með fótinn í kringum boltann á lofti með báðum fótum og svo rekja hann framhjá fjórum leikmönnum á æfingum.“

„Mér finnst þetta líka mjög góð leið til að byggja upp sjálfstraust fyrir leiki. Ef hár bolti kemur til þín, þá treystirðu tækninni þinni til að taka við honum og ná honum strax undir stjórn.“


Fred hélt áfram að hrósa honum og óskaði honum til hamingju með sætið í U21-landsliðinu sem hann sagði fyllilega verðskuldað.

„Freysi er ótrúlega hæfileikaríkur og verðskuldar þetta tækifæri. Ég myndi segja að hann væri hæfileikaríkasti leikmaðurinn á Íslandi í sínum aldursflokki,“ sagði hann að lokum.
Freyr hefur lærgt margt af Fred

Freyr hefur lærgt margt af Fred

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég hef séð Freysa gera hluti sem ég hef aldrei getað gert á ævinni“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég hef séð Freysa gera hluti sem ég hef aldrei getað gert á ævinni“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.