25.10.20 - 18:26
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Arsenal og Leicester: Lacazette og Partey byrja

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Evrópudeildarliðin Arsenal og Leicester eigast við í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Bæði lið unnu leiki sína í Evrópu á fimmtudaginn og fá tæplega þriggja sólarhringa hvíld á milli leikja.
Leicester lenti ekki í erfiðleikum á heimavelli gegn Zorya Luhansk á meðan Arsenal lenti í miklu basli gegn Rapid frá Vínarborg. Pierre-Emerick Aubameyang og Hector Bellerin þurftu að koma inn af bekknum til að bjarga málunum eftir að Arsenal lenti undir í upphafi síðari hálfleiks.
Byrjunarlið kvöldsins hafa verið kynnt og gerir Mikel Arteta tvær breytingar á liði Arsenal eftir tap gegn Manchester City í síðustu umferð. Thomas Partey og Alexandre Lacazette koma inn fyrir Willian og Nicolas Pepe. Rúnar Alex Rúnarsson er varamarkvörðurinn.
Brendan Rodgers gerir einnig tvær breytingar eftir tap gegn Aston Villa í síðustu umferð. Christian Fuchs og James Maddison koma inn í liðið fyrir Kelechi Iheanacho og Ayoze Perez.
Arsenal og Leicester eru jöfn Chelsea í 8-10. sæti úrvalsdeildarinnar sem stendur, með 9 stig eftir 5 umferðir.
Arsenal: Leno, Bellerin, Luiz, Gabriel, Tierney, Saka, Ceballos, Xhaka, Partey, Lacazette, Aubameyang
Varamenn: Rúnarsson, Maitland-Niles, Mustafi, Elneny, Willock, Pepe, Nketiah
Leicester: Schmeichel, Castagne, Fofana, Evans, Fuchs, Justin, Mendy, Tielemans, Praet, Maddison, Barnes
Varamenn: Ward, Morgan, Choudhury, Albrighton, Ünder, Iheanacho, Vardy

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Newcastle | 9 | -2 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Everton | 9 | -1 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |