Fotbolti.net
02.11.26 - 12:15
Elvar Geir Magnússon

Aston Villa hætt við að lögsækja Carragher

Jamie Carragher.

Jamie Carragher.

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa hefur hætt við að lögsækja sparkspekinginn Jamie Carragher, sérfræðing Sky Sports og fyrrum leikmann Liverpool.

Carragher sá sig knúinn til að biðjast afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Aston Villa í spjallþættinum Stick to Football á dögunum.
Piers Morgan lætur Carragher heyra það - „Af hverju í ósköpunum ertu að biðjast afsökunar?“
TENGT EFNI

Piers Morgan lætur Carragher heyra það - „Af hverju í ósköpunum ertu að biðjast afsökunar?“

Carragher hjólaði í stuðningsmenn Aston Villa og sagði að þeir þyrftu að átta sig á því hvar í fæðukeðjunni þeir væru staddir.

Hann var þar að útskýra hvers vegna Unai Emery ætti að vera spenntur fyrir möguleikanum á að taka við Manchester United og benti á að United væri mun stærra félag en Aston Villa.

Carragher notaði nokkuð óviðeigandi orðalag, en ummæli hans voru þó langt frá því að vera þess eðlis að þau gæfu tilefni til málshöfðunar.

Engu að síður ákvað Nassef Sawiris, stjórnarformaður Villa, að birta færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagðist ætla að höfða mál gegn Carragher vegna óásættanlegra móðgana í garð félagsins og stuðningsmanna þess.

Villa hefur nú hætt við hótanir um málsókn eftir að Carragher baðst afsökunar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.