Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 26. janúar 2020 22:18
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmótið: Þægilegur sigur Fylkis
Valdimar Þór Ingimundarson skoraði tvö
Valdimar Þór Ingimundarson skoraði tvö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 3 - 0 Þróttur R.
1-0 Valdimar Þór Ingimundarson
2-0 Valdimar Þór Ingimundarson
3-0 Þórður Gunnar Hafþórsson

Fylkir vann Þrótt R. 3-0 í Reykjavíkurmóti karla í Egilshöllinni í kvöld en Fylkir vann tvöfaldan sigur á Þrótturum í dag.

Kvennaliðið Fylkis vann Þrótt 2-0 fyrr í dag í Reykjavíkurmótinu og ákváðu strákarnir að gera slíkt hið sama.

Valdimar Þór Ingimundarson skoraði tvö mörk fyrir Fylki á meðan Þórður Gunnar Hafþórsson gerði eitt.

Fylkir klárar riðilinn með 6 stig en lakari markatölu en Fjölnir sem fer í undanúrslit mótsins. Þróttur er í neðsta sæti riðilsins með 3 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner