Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. janúar 2021 21:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Jón Daði kom inn á gegn Watford
Millwall er í 15. sæti.
Millwall er í 15. sæti.
Mynd: Getty Images
Það fóru fram tveir leikir í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands, í kvöld.

Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 72. mínútu þegar Millwall gerði markalaust jafntefli við Watford á heimavelli.

Millwall situr í 15. sæti deildarinnar með 30 stig eftir 25 leiki og er Watford komið upp í annað sæti með 47 stig.

Bristol City er í áttunda sæti eftir sigur á heimavelli gegn Huddersfield. Famara Diedhiou skoraði bæði mörk Bristol City sem vann leikinn 2-1. Huddersfield er í 14. sæti með 31 stig.

Millwall 0 - 0 Watford

Bristol City 2 - 1 Huddersfield
1-0 Famara Diedhiou ('23 )
2-0 Famara Diedhiou ('27 )
2-1 Juninho Bacuna ('59 )
Athugasemdir
banner
banner