Markvörðurinn efnilegi Jökull Andrésson var í markinu hjá Morecambe í kvöld þegar liðið bar sigur úr býtum gegn Exeter City í ensku D-deildinni.
Fyrr á þessu tímabili var Jökull í neyðarláni hjá Exeter en hann er núna í láni hjá Morecambe frá Reading.
Hann mætti sínum gömlu félögum í kvöld og svo fór að Morecambe vann mjög góðan sigur, 2-0. Jökull átti mjög góðan leik og var með betri mönnum vallarins.
Morecambe komst upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri en Exeter er í áttunda sæti.
Jökull hefur spilað með Reading síðan 2017 og á að baki fjóra landsleiki fyrir íslenska U19 landsliðið. Hann er 19 ára gamall og mjög efnilegur.
Athugasemdir