Fotbolti.net
26.01.21 - 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Myndband: Athyglisverð uppákoma á milli Schar og Rodrigo

Schar fer yfir málin með Rodrigo.

Schar fer yfir málin með Rodrigo.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds hafði betur gegn Newcastle í kvöld, 2-1. Flottur sigur hjá lærisveinum Marcelo Bielsa.
Það átti sér stað athyglisvert atvik í leiknum, á milli Fabian Schar, varnarmanns Newcastle, og Rodrigo, sóknarmanns Leeds.

Schar lá í jörðinni og þá kom Rodrigo að honum. Rodrigo sagði eitthvað sem varð til þess að Schar reis upp og fór á eftir Spánverjanum. Netverjar velta því fyrir sér hvort Rodrigo hafi gert meira en að nota orð, það eru vangaveltur um það hvort hann hafi hrækt á Schar en erfitt er að dæma um það á myndunum.

Schar fór upp að Rodrigo sem henti sér síðan í jörðina. Báðir leikmenn uppskáru gult spjald.

Samkvæmt Phil Hay, blaðamanni The Athletic, þá sagði Rodrigo eitthvað sem Schar tók ekki vel í. Miðað við orð Hay þá hrækti Rodrigo ekki á varnarmann Newcastle.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.