Fotbolti.net
26.01.22 - 12:24
Elvar Geir Magnússon

Bruno Guimaraes fer til Newcastle

Bruno Guimaraes.

Bruno Guimaraes.

Canon

Mynd: Getty Images

Lyon samþykkti 33,5 milljóna punda tilboð frá Newcastle í varnartengiliðinn Bruno Guimaraes.

Guardian segir að þessi 24 ára Brasilíumaður hafi þegar náð samkomulagi við enska úrvalsdeildarfélagið um kaup og kjör.

Hann mun fara í læknisskoðun hjá Newcastle eftir landsleik með Brasilíu sem fram fer í Ekvador á fimmtudaginn.
Arsenal, Juventus og fleiri félög höfðu einnig verið orðuð við leikmanninn en Newcastle er að tryggja sér hann.

Guimaraes kom til Lyon frá brasilíska félaginu Athletico Paranaense fyrir tveimur árum.

Það er nóg að gera hjá Newcastle á leikmannamarkaðnum eftir að Sádi-Arabarnir keyptu félagið en liðið er í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni. Á dögunum vann liðið afskaplega mikilvægan sigur gegn Leeds United.

Newcastle hefur reynt að fá miðvörðinn Diego Carlos en Sevilla stendur fast á því að leikmaðurinn verði ekki seldur í þessum glugga. Newcastle hefur því þurft að horfa á aðra kosti í vörnina.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.