Tottenham er tilbúið að gera tilboð í varnartengiliðinn Sofyan Amrabat hjá Fiorentina. Enska félagið ætlar að gera lánstilboð með möguleika á kaupum fyrir 13,4 milljónir punda.
Amrabat er 25 ára en hann er með Marokkó á Afríkukeppninni. Samkvæmt frétt Guardian vill hann fara til Spurs.
Amrabat er 25 ára en hann er með Marokkó á Afríkukeppninni. Samkvæmt frétt Guardian vill hann fara til Spurs.
Viðræður hafa verið í gangi milli Tottenham og Fiorentina síðan á sunnudag en Tottenham þarf að losa Tanguy Ndombele, sem Paris Saint-Germain vill fá, eða Dele Alli, sem Newcastle hefur sýnt áhuga, ef félagið ætlar að taka Amrabat.
Amrabat hefur aðeins byrjað einn leik í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili en hefur tíu sinnum komið af bekknum. Hann er fyrrum leikmaður Utrecht, Feyenoord, Club Brugge og Verona.
Athugasemdir