Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 26. febrúar 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Yfirlýsing ÍA: Tillaga Fram hefur hvað mestan stuðning
Skagamenn fagna marki.
Skagamenn fagna marki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ársþing KSÍ fer fram á morgun en um er að ræða rafrænt þing að þessu sinni. Þar verður meðal annars kosið um mögulegar breytingar á keppnisfyrirkomulagi í efstu deild karla.

Tillögur að breytingum
Fram - Fjölga í 14 lið í efstu deild. Tvöföld umferð
Fylkir - Fækka í 10 lið og spila þrefalda umferð
ÍA - Halda 12 liðum og spila þrefalda umferð
KSÍ - Halda 12 liðum og bæta við úrslitakeppni. Í úrslitakeppni skal leikin einföld umferð á milli sex efstu liða annars vegar og á milli sex neðstu liða hins vegar

Orðrómur hefur verið um að ÍA og Fylkir muni draga tillögur sínar til baka en Vísir greindi frá því í gær.

ÍA sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem félagið segist styðja tvær tillögur á morgun. Tillögu sína og tillögu Fram um að fjölga í 14 lið. Til að tillaga fái samþykki þarf hún að fá stuðning 2/3 fundarmanna

Yfirlýsing ÍA
Tillögur um breytingar á keppni í efstu deild karla frá og með árinu 2022.

Á laugardaginn mun ársþing KSÍ taka til umfjöllunar og afgreiðslu fjórar tillögur um breytingar á lögum sambandsins sem munu leiða af sér breytingu á keppni í efstu deild karla og reyndar gerir ein tillagan einnig ráð fyrir breytingu á keppni í 1. deild karla.
Knattspyrnufélag ÍA hefur lagt fram þá tillögu að leikjum verði fjölgað í 12 liða deild þannig að leikin verði þreföld umferð í stað tveggja umferða eins og nú er. Knattspyrnufélagið Fram hefur lagt fram tillögu um 14 liða efstu deild, tillaga sem Knattspyrnufélag ÍA lagði fram á síðasta ári. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA styður þessar tillögur en til að tillaga fái samþykki þarf hún að fá stuðning 2/3 fundarmanna. Knattspyrnufélag ÍA telur að þessar tillögur falli vel að þeirri stefnu félagsins að gefa ungum leikmönnum aukin tækifæri í keppni þeirra bestu og veitir öllum félögum möguleika á auknum tekjum með fleiri leikjum og sölu efnilegra leikmanna til erlendra félaga. Í samtölum forsvarsmanna Knattspyrnufélags ÍA við aðra í hreyfingunni virðist tillaga Fram hafa hvað mestan stuðning.

Knattspyrnufélag ÍA styður hins vegar ekki hinar tvær tillögurnar sem liggja fyrir. Í fyrsta lagi tillögu starfshóps KSÍ um nýja þriðju umferð sem yrði skipt í tvennt að loknum tveimur umferðum, keppni efri 6 liða innbyrðis annars vegar og neðri 6 liða innbyrðis hins vegar. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA telur þessa tillögu geta breikkað þá fjárhagslegu gjá sem þegar er til staðar á milli íslenskra félaga. Með því að skipta keppni í efstu deild í tvo hluta gæti orðið til keppni í neðri hluta sem er lítt áhugaverð fyrir þann breiða hóp áhugafólks sem stendur að baki knattspyrnunni.

Í öðru lagi styður Knattspyrnufélaga ÍA ekki tillögu Fylkis um 10 lið í efstu deild með þrefaldri umferð og 14 liða 1. deild með tvöfaldri umferð. Knattspyrnufélag ÍA telur að fækkun liða í efstu deild styðji ekki við þau markmið að auka framgöngu ungra leikmanna enda fækkar möguleikum þeirra með færri liðum í efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner