Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 22:00
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Aðdáunarverð barátta Brann dugði ekki til - Forest áfram
Jacob Sörensen sá rautt í liði Brann
Jacob Sörensen sá rautt í liði Brann
Mynd: EPA
Freyr Alexandersson á hliðarlínunni í kvöld
Freyr Alexandersson á hliðarlínunni í kvöld
Mynd: EPA
Íslendingalið Brann hefur lokið keppni í Evrópudeildinni eftir 1-0 tap og samanlagt 2-0 gegn ítalska A-deildarliðinu Bologna á Ítalíu í kvöld.

Mikið hugrekki var í Brann sem var betri aðilinn í fyrri hálfleiknum og var að valda heimamönnum miklum usla.

Lukasz Skorupski, markvörður Bologna, kom sínum mönnum nokkrum sinnum til bjargar, en það sem drap leikinn fyrir gestina var þegar Jacob Lungi Sörensen sá rautt fyrir brot á Remo Freuler á 37. mínútu.

Freyr var furðu lostinn á hliðarlínunni. Báðir reyndu við boltann en Sörensen fór með takkana í hnéhæð á Freuler og reif dómarinn upp rauða spjaldið um leið.

Bologna stýrði leiknum betur í þeim síðari og náði í sigurmarkið í gegnum portúgalska vængbakvörðinn Joao Mario á 56. mínútu sem skoraði með góðu skoti.

Heimamenn fengu færin til þess að bæta við en létu sér eitt mark nægja.

Bologna er komið áfram í 16-liða úrslit en Brann er úr leik.

Kristall Máni Ingason og Jón Dagur Þorsteinsson byrjuðu báðir hjá Brann. Kristall fór af velli eftir klukkutíma en Jón Dagur fór út af þrettán mínútum síðar.

Celta Vigo er komið áfram eftir 1-0 sigur á PAOK og vann því einvígið samanlagt, 3-1. Williot Swedberg skoraði eina markið í kvöld.

Vitor Pereira stýrði sínum mönnum í Nottingham Forest áfram þrátt fyrir 2-1 tap gegn gömlu lærisveinunum í Fenerbahce.

Forest vann fyrri leikinn í Istanbúl með þremur mörkum gegn engu, en Fenerbahce ætlaði ekki að láta þau úrslit hafa áhrif á sig.

Kerem Akturkoglu skoraði á 22. mínútu og síðan annað í byrjun síðari hálfleiks úr vítaspyrnu.

Tuttugu mínútum síðar drap Callum Hudson-Odoi vonir Fenerbahce er hann minnkaði muninn í 2-1 eftir fyrirgjöf frá Ola Aina. Báðir komu inn af bekknum í hálfleik.

Forest kom sér þægilega áfram, 4-2 samanlagt, og verður því í pottinum á morgun og mun mæta annað hvort Real Betis eða Midtjylland.

Framlenging er í gangi í leik Genk og Dinamo Zagreb, en Króatarnir náðu að vinna sig til baka eftir að hafa tapað fyrri leiknum 3-1 og er staðan nú sú sama í seinni leiknum.

Bologna 1 - 0 SK Brann (2-0, samanlagt)
1-0 Joao Mario ('56 )
Rautt spjald: Jacob Lungi Sorensen, SK Brann ('37)

Celta 1 - 0 PAOK (3-1, samanlagt)
1-0 Williot Swedberg ('63 )

Genk 1 - 3 Dinamo Zagreb (Framlengt)
0-1 Monsef Bakrar ('45 )
1-1 Yira Sor ('51 )
1-2 Luka Stojkovic ('57 , víti)
1-3 Luka Stojkovic ('75 )

Nott. Forest 1 - 2 Fenerbahce (4-2, samanlagt)
0-1 Muhammed Kerem Akturkoglu ('22 )
0-2 Muhammed Kerem Akturkoglu ('48 , víti)
1-2 Callum Hudson-Odoi ('68 )
Athugasemdir
banner
banner