Fotbolti.net
26.02.26 - 20:50
Brynjar Ingi Erluson

Evrópudeildin: Sverrir áfram eftir vítakeppni - Lille sneri taflinu við í Belgrad

Sverrir Ingi var með bandið í sigri Panathinaikos

Sverrir Ingi var með bandið í sigri Panathinaikos

Canon

Mynd: EPA

Íslendingaliðin Lille og Panathinaikos bókuðu sæti sín í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.
Sverrir Ingi Ingason var í vörn Panathinaikos sem hafði betur gegn tékkneska liðinu Viktoria Plzen í Tékklandi.

Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma en í framlengingunni sá Javier Hernandez, leikmaður Panathinaikos, rauða spjaldið er hann reif sóknarmann Plzen niður sem var að sleppa í gegn.

Manni færri náðu Pana-menn að tryggja sig inn í vítakeppni þar sem þeir höfðu betur, 4-3.

Alban Lafont varði eina spyrnu og á þrumaði annar leikmaður Plzen hátt yfir markið á meðan Panathinaikos skoraði úr fjórum spyrnum.

Sverrir tók við fyrirliðabandinu undir lok venjulegs leiktíma eftir að Anastasios Bakasetas fór af velli.

Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem kom til baka gegn Rauðu stjörnunni og vann góðan 2-0 sigur í Belgrad í Serbíu, eftir arfaslaka frammistöðu í fyrri leiknum.

Olivier Giroud, markahæsti leikmaður í sögu franska landsliðsins, skoraði fyrir Lille á 4. mínútu og þá gerði Nathan Ngoy mikilvægt sigurmark í fyrri hluta framlengingar.

Íslendingaliðin komin áfram en dregið verður í 16-liða úrslitin á morgun.

Crvena Zvezda 0 - 2 Lille (1-2, samanlagt)
0-1 Olivier Giroud ('4 )
0-2 Nathan Ngoy ('99 )

Plzen 1 - 1 Panathinaikos (Panathinaikos áfram eftir vítakeppni)
0-1 Andreas Tetteh ('9 )
1-1 Karel Spacil ('62 )
Rautt spjald: Javi Hernandez, Panathinaikos ('105)
Evrópudeildin: Sverrir áfram eftir vítakeppni - Lille sneri taflinu við í Belgrad
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.