KR 2 - 2 HK
0-1 Karlotta Björk Andradóttir ('20 )
1-1 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('28 )
1-2 Emma Sól Aradóttir ('43 )
2-2 Makyala Soll ('52 )
0-1 Karlotta Björk Andradóttir ('20 )
1-1 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('28 )
1-2 Emma Sól Aradóttir ('43 )
2-2 Makyala Soll ('52 )
KR og HK gerðu 2-2 jafntefli í B-deild Lengjubikars kvenna á KR-vellinum í kvöld. Aðstæður voru ekki frábærar í Vesturbæ, snjór og vindur, en leikmenn létu það ekki á sig fá.
Það var HK sem tók frumkvæðið er Karlotta Björk Andradóttir skoraði á 20. mínútu en Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir svaraði átta mínútum síðar fyrir KR.
Emma Sól Aradóttir kom HK aftur í forystu undir lok fyrri hálfleiksins áður en Makayla Soll sá til þess að tryggja KR-ingum stig með marki á 52. mínútu.
Bæði lið hafa byrjað vel í keppninni. KR er á toppnum með 7 stig eftir þrjá leiki og þá er HK með 4 stig úr tveimur leikjum.
HK mætir ÍA þann 8. mars og síðan Keflavík þann 21. mars á meðan KR á eftir að spila við Selfoss. Sá leikur fer fram 19. mars.
Lengjubikar kvenna - B-deild
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. HK | 6 | 4 | 0 | 2 | 21 - 7 | +14 | 14 |
| 2. KR | 6 | 4 | 0 | 2 | 17 - 9 | +8 | 14 |
| 3. Keflavík | 6 | 2 | 2 | 2 | 12 - 12 | 0 | 8 |
| 4. Grótta | 6 | 2 | 2 | 2 | 17 - 20 | -3 | 8 |
| 5. Haukar | 6 | 2 | 3 | 1 | 13 - 13 | 0 | 7 |
| 6. ÍA | 6 | 1 | 3 | 2 | 9 - 14 | -5 | 5 |
| 7. Selfoss | 6 | 0 | 5 | 1 | 5 - 19 | -14 | 1 |



