Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 23:29
Brynjar Ingi Erluson
„Má vera að ég hafi veitt viðtöl sem voru ekki sérlega gagnleg“
Oliver Glasner
Oliver Glasner
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, var glaðlyndur eftir að hann kom liðinu áfram í 16-liða úrslit Sambandsdeildarinnar í kvöld, en hann viðurkenndi um leið að hann fari stundum yfir strikið í viðtölum.

Palace vann samanlagðan 3-1 sigur á Zrinjski Mostar frá Bosníu og mun mæta AEK Larnaca eða Mainz í 16-liða úrslitum.

Glasner hefur komið fram í nokkrum viðtölum á síðustu vikum þar sem hann hefur gagnrýnt stuðningsmenn, leikmenn og stjórnina, en aldrei misst traustið.

„Þetta er mjög þýðingarmikið. Við höfum ekki átt auðveldar vikur en höfum nú unnið tvo leiki í röð á Selhurst Park. Leikirnir sem allir búast við að við vinnum eru yfirleitt þeir erfiðustu.“

„Það voru allir að búast við sigri gegn Wolves á heimavelli og það hafðist á lokamínútunum. Það var alveg eins í dag, en þetta var mjög fagmannlegur sigur.“

„Við lærðum af fyrri leiknum og biðum eftir réttu augnablikunum áður en við náðum síðan að gera út um leikinn,“
sagði Glasner.

Hann nýtur enn stuðnings stjórnarinnar og vonast nú til að geta klárað tímabilið með stæl.

„Ég er 100% með stuðninginn. Það er mikilvægast að leikmennirnir hafi trú á mér og þjálfarateyminu annars getur maður bara pakkað í töskur og farið heim því það eru leikmennirnir sem þurfa að standa sig á vellinum.“

„Það er samheldnir í hópnum sem er jákvætt og það sama á við um yfirmann íþróttamála og stjórnarformanninn. Þeir eru stundum að velta fyrir sér: 'Hey, þetta er annað besta tímabil félagsins í ensku úrvalsdeildinni og það besta var á síðasta ári. Þannig þetta eru kannski tvö bestu árin í sögu Crystal Palace, spilandi Evrópubolta í fyrsta sinn, en samt er allur þessi hávaði?'. Stundum skiljum við ekkert í þessu.“

„Það má alveg vera að ég hafi veitt viðtöl sem voru ekki sérlega gagnleg. Ég verð að viðurkenna það, en á hinn bóginn þá segi ég alltaf hvað mér liggur á hjarta. Stundum er það jákvætt og stundum ekkert svo jákvætt. Þannig er ég bara.“

„Þegar allt kemur til alls erum við í góðri stöðu í deildinni og Sambandsdeildinni þannig nú er það undir okkur komið að ná í úrslit og gera gott úr þessu tímabili,“
sagði Glasner.
Athugasemdir
banner
banner
banner