Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   fim 26. febrúar 2026 21:34
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Skagamenn unnu Val
Viktor Jónsson skoraði seinna mark ÍA
Viktor Jónsson skoraði seinna mark ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 2 - 1 Valur
1-0 Baldvin Þór Berndsen ('10 )
2-0 Viktor Jónsson ('28 )
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('39 )

Skagamenn unnu síðasta leik sinn í Lengjubikarnum þetta árið er liðið marði 2-1 sigur á Val í Akraneshöllinni í kvöld.

Baldvin Þór Berndsen og Viktor Jónsson skoruðu mörk ÍA á fyrsta hálftímanum en Tryggvi Hrafn Haraldsson gerði mark Vals undir lok hálfleiksins.

ÍA er í öðru sæti B-riðils með 7 stig á meðan Valur var að tapa sínum fyrsta leik og er því í 3. sæti með 6 stig.

Völsungur dró sig úr keppni eftir tvö stórtöp gegn ÍA og Þór, en samkvæmt heimasíðu KSÍ voru þau úrslit felld úr gildi.

Þór og Valur mætast í hreinum úrslitaleik um efsta sætið þann 10. mars næstkomandi. Þór er á toppnum með 7 stig og nægir eitt stig til að taka toppsætið.


Lengjubikar karla - A-deild, riðill 2
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þór 4 3 0 1 14 - 3 +11 10
2.    ÍA 4 2 1 1 7 - 5 +2 7
3.    Valur 4 2 2 0 8 - 7 +1 6
4.    Afturelding 4 2 2 0 4 - 10 -6 6
5.    Grótta 4 0 4 0 2 - 10 -8 0
Slapp
banner
banner