Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu rauða spjaldið: Freysi furðu lostinn yfir dómgæslunni
Freyr skildi ekki neitt í neinu
Freyr skildi ekki neitt í neinu
Mynd: EPA
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Brann etja nú kappi við Bologna í umspili Evrópudeildarinnar, en þeir norsku virðast klárlega hafa styrk og getur til að keppast við ítalska A-deildarliðið.

Bologna vann fyrri leikinn 1-0 í Noregi en Brann hefur verið líklegt til að skora í seinni leiknum sem er nú spilaður í Bologna.

Staðan er markalaus þegar flautað hefur verið til loka fyrri hálfleiks, en Brann er manni færri eftir að danski miðjumaðuirnn Jacob Lungi Sörensen var rekinn af velli.

Hann fór hátt með fótinn í einvígi sínu við Remo Freuler. Báðir voru að reyna við boltann en Sörensen fór í hnéhæð með takkana, en fylgdi þó ekki á eftir og reyndi að komast hjá því að fara af öllum krafti í Freuler.

Dómarinn fór strax í rassvasann og gaf Sörensen rautt spjald, en Freyr var furðu lostinn á hliðarlínunni og þá lét Jón Dagur hinn svissneska Freuler heyra það fyrir að liggja í grasinu.

Rauða spjaldið má sjá hér fyrir neðan.


Bologna 0-0 Brann - Jacob Lungi Sørensen red card 37' | agg. 1-0
by
u/4gjdtokurwa in
soccer

Athugasemdir
banner