Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 17:37
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikar kvenna: Fimm lið í 16-liða úrslit - Tvær fernur
Keflavík er komið áfram í 16-liða úrslit
Keflavík er komið áfram í 16-liða úrslit
Mynd: Keflavík/Instagram
Fimm lið komu sér í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í dag.

FHL vann 7-0 stórsigur á Völsungi á SÚN-vellinum. Celia Maria Ruano Trujillo gerði sér lítið fyrir og skoraði fernu á tæpum tuttugu mínútum.

Fyrsta markið gerði hún á 7. mínútu og fullkomnaði hún fernuna á 19. mínútu.

Brooklyn Mae Nelson, Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir og Alexis Simone Wright komust einnig á blað.

Ariela Lewis skoraði einnig fernu er Keflavík fór illa með KÞ, 8-3. Þóra Guðrún Einarsdóttir Briem skoraði tvö fyrir KÞ í leiknum.

Skagakonur komu til baka og unnu 2-1 sigur á Aftureldingu á meðan Tindastóll vann 3-0 sigur á ÍR.

Juliana Marie Paoletti skoraði þá tvö mörk og tryggði Selfyssingum 2-1 endurkomusigur á Haukum.

Öll sigurliðin verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit keppninnar.

Úrslit og markaskorarar:

FHL 7 - 0 Völsungur
1-0 Celia Maria Ruano Trujillo ('7 )
2-0 Celia Maria Ruano Trujillo ('9 )
3-0 Celia Maria Ruano Trujillo ('18 )
4-0 Celia Maria Ruano Trujillo ('19 )
5-0 Brooklyn Mae Nelson ('36 )
6-0 Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir ('38 )
7-0 Alexis Simone Wright ('87 )

KÞ 3 - 8 Keflavík
0-1 Ariela Lewis ('2 )
0-2 Ariela Lewis ('6 )
0-3 Mia Angelique Ramirez ('9 )
1-3 Þóra Guðrún Einarsdóttir Briem ('22 )
1-4 Ariela Lewis ('49 )
2-4 Þóra Guðrún Einarsdóttir Briem ('50 )
2-5 Ariela Lewis ('52 )
2-6 Alyssa Yana Daily ('59 )
2-7 Olivia Madeline Simmons ('77 )
3-7 Ragnheiður Júlía Rafnsdóttir ('82 , sjálfsmark)
3-8 Eva Dís Sighvatsdóttir ('84 )

Afturelding 1 - 2 ÍA
1-0 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('12 )
1-1 Erna Björt Elíasdóttir ('39 )
1-2 Tinna Guðjónsdóttir ('74 , sjálfsmark)

Tindastóll 3 - 0 ÍR
1-0 Rita Feist Lang ('41 )
2-0 Aimilia Daskalou ('62 )
3-0 Rita Feist Lang ('78 )

Selfoss 2 - 1 Haukar
0-1 Karólína Dröfn Jónsdóttir ('33 )
1-1 Juliana Marie Paoletti ('44 )
2-1 Juliana Marie Paoletti ('75 )
Slapp
banner
banner
banner