Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 26. júlí 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aston Villa að brjóta bankann fyrir Grealish
Jack Grealish.
Jack Grealish.
Mynd: Getty Images
Aston Villa ætlar sér að gera allt til að halda stjörnuleikmanni sínum, Jack Grealish.

Grealish var stórkostlegur á síðasta leiktímabili með Aston Villa og háværar sögur eru um að Manchester City vilji kaupa hann, og Harry Kane í sumar.

Á meðan EM var í gangi var talað um það að Manchester City myndi gera Grealish að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans.

Hinn 25 ára gamli Grealish er núna í fríi en Villa ætlar sér að gera honum nýtt samningstilboð. Samkvæmt The Sun, þá er það alla vega raunin og er talað um að samningstilboðið sé upp á 200 þúsund pund í vikulaun.

Það er rosaleg upphæð en Grealish skrifaði síðast undir nýjan samning fyrir tæpu ári síðan. Núna er hann með 120 þúsund pund í vikulaun hjá Villa. Hann er langlaunahæstur hjá félaginu en hann verður einn launahæsti leikmaður deildarinnar ef hann tekur meintu samningstilboði frá Villa.
Athugasemdir
banner
banner
banner