26.08.26 - 15:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sunderland býður í Grealish

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sunderland hefur lagt fram tilboð í Jack Grealish sem er leikmaður Manchester City.
Sunderland vill fá hann á láni og myndi greiða hluta af launum enska kantmannsins. Möguleiki væri svo á því að Grealish myndi alfarið ganga í raðir Sunderland næsta sumar þegar samningur hans við City rennur út.
Grealish er þrítugur og var á láni hjá Everton á síðasta tímabili. Hann kom inn á sem varamaður gegn Arsenal í leiknum um Samfélagsskjöldinn og gegn Bournemouth í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar.

Sunderland er líka að reyna fá Brasilíumanninn Igor Paixao sem er vængmaður Marseille og skoraði tólf mörk í frönsku úrvalsdeildinni í fyrra.
Sunderland er á leið í Evrópudeildina, félagið hefur verið rólegt á markaðnum til þessa en er að stíga á bensíngjöfina þegar stutt er í gluggalok.
City hefur þegar selt Savio til Tottenham og Omar Marmoush er að fara sömu leið.