Fotbolti.net
26.08.26 - 16:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fredericia vill fá Dag Orra

Fredericia vill fá Dag Orra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Orri Garðarsson er á blaði hjá danska félaginu Fredericia sem hefur áhuga á framherjanum. Hann er samningsbundinn Val út 2030 og því þarf að kaupa hann af Val.

Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni segir í færslu á X að Dagur sé á leið til danska félagsins. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er það ekki frágengið.

Dagur Orri, sem varð 21 árs á mánudag, kom til Vals frá uppeldisfélaginu Stjörnunni í vetur eftir að hafa verið á láni hjá HK í Lengjudeildinni.
Hann meiddist í maí og missti af tveimur mánuðum vegna meiðslanna. Hann hefur skorað þrjú mörk í ellefu leikjum í Bestu deildinni í sumar.

Dagur er sonur fyrrum atvinnu- og landsliðsmannsins Garðars Jóhannssonar og er eldri bróðir Bjarka Hrafns sem er á mála hjá Dortmund.

Fredericia er taplaust eftir fimm leiki í dönsku B-deildinni, liðið er með níu stig í 4. sæti. Daníel Freyr Kristjánsson lék með liðinu síðustu tvö tímabil á láni frá Midtjylland en gekk í sumar í raðir Lyngby.

Fredericia vill fá Dag Orra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.