26.09.26 - 19:29
Kári Snorrason
Hákon Arnar: Getum sýnt að þetta var ekki okkar rétta andlit
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Við hefðum getað unnið þennan leik en líka tapað honum. Maður vill alltaf virða stigið en við viljum vinna heimaleik gegn Eistlandi,“ sagði Hákon Arnar Haraldsson eftir 1-1 jafntefli Íslands gegn Eistlandi í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Eistland
„Mér fannst við sofna á verðinum fyrstu fimmtán í seinni hálfleik. Við komumst í góðar stöður til þess að klára leikinn en gerðum það ekki,“ sagði Hákon aðspurður um hvort að það hafi verið vottur af værukærð í íslenska liðinu.
Ísland heldur út til Lúxemborgar og etur kappi við þjóðina á þriðjudag. Hákon segir það gott að þrír leikir séu eftir í glugganum. „Við eigum þrjá leiki inni, þannig við getum sýnt að þetta var ekki okkar rétta andlit,“ sagði Hákon að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.