Arnar: Myndi örugglega kjósa sjálfan mig í burtu eftir svona leik

Arnar fyrir leikinn í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ísland fagnar marki.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hákon Rafn bjargaði íslenska liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland hefur aðeins unnið þrjá af 16 leikjum síðan Arnar tók við.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Úr leik dagsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland spilar næst við Lúxemborg.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Arnar brúnaþungur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar fyrir leikinn í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Við náðum illa að díla við seinni boltana. Ég held að öllum hafi langað þetta mjög mikið en það vantaði einhvern neista samt sem áður. Það var líka mikið af tæknifeilum. Augnablikin voru alltof fá og of langt á milli þeirra. Við náðum aldrei neinum skriðþunga og okkur tókst ekki að þrýsta þeim neðar og neðar. Það kom ekki fyrr en í lokin kannski, tíu mínútna kafli þar sem við vorum að þrýsta þeim vel niður. Ég hefði viljað sjá þannig kafla miklu fyrr og ég hefði viljað sjá okkur ákveðnari. Þessi leikur minnti á leikinn gegn Aserbaídsjan hér heima, en við vorum miklu betri í þeim leik. Við fengum mark rétt fyrir hálfleik en svo vantaði neista fannst mér," sagði Arnar.
„Eistland spilaði góðan taktískan leik, þeir voru með gott leikplan og voru sterkir í einvígum. Það var andi yfir þeim en það vantaði neista hjá okkur. Það voru viðvörunarmerki áður en þeir skoruðu, þeir klikkuðu á vítaspyrnu og á góðu tækifæri í fyrri hálfleiknum. Við vorum með mikið af boltanum en tókum líka slæmar ákvarðanir með boltann."
Vorum við heppnir?
Besti maður Íslands í leiknum var Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður liðsins. Má segja að við höfum bara verið heppnir að tapa ekki þessum leik?
„Það má alveg segja það," sagði Arnar.
„Það eru mikil vonbrigði hvað við fáum lítið af opnum færum. Um leið og við létum boltann ganga hratt þá fannst mér við geta spilað í gegnum þá að vild, en það var svo langt á milli þeirra augnablika. Næsta augnablik kom eftir korter, en í svona leik þarftu augnablik eftir augnablik og aðeins að ná að hræða þá en við gerðum það ekki nægilega mikið en við það fengu þeir sjálfstraust. Þeir voru sniðugir að fá aukaspyrnur. Þeir náðu alltaf að drepa niður okkar augnablik og við vorum óþolinmóðir fyrir vikið, misstum hausinn. Það leiddi til þess að við gerðum enn fleiri tæknileg mistök. Þetta var illa stjórnaður leikur af okkar hálfu."
Finnur fyrir pressunni alla daga
Það var mikill hiti í umræðunni og á samfélagsmiðlum eftir leikinn þar sem Arnar fékk mikla gagnrýni. Hann hefur núna aðeins unnið þrjá af 16 leikjum sínum sem landsliðsþjálfari Íslands.
„Ég er mikill tölfræðigaur en að vinna þrjá leiki af 16 er alls ekki nægilega gott. Það er ekki flóknara en það. Svo geturðu farið í alls konar krúsídúllur og bent á það að við höfum spilað gegn Argentínu, tvisvar á móti Frökkum, Mexíkó og Kanada á útivelli. Núna erum við á heimavelli á móti Eistlandi og þetta eru klárlega mestu vonbrigðin hingað til af þessum leikjum. Leikirnir gegn Kosóvó voru byrjunin á einhverju nýju. Það er kannski hægt að fyrirgefa það. Kosóvó eru líka aðeins betri en mörgum grunar miðað við þeirra úrslit upp á síðkastið."
„Ég er alltaf heiðarlegur við þjóðina og ykkur; og það er bara rétt, þetta er ekki nægilega gott. Ég er búinn að vera lengi í þessum bransa og ég ætla ekkert að panikka. Við erum með góða stráka. Þetta var ekki okkar dagur. Mitt starf snýst um að reyna að finna ástæðuna fyrir því. Ég ber höfuðábyrgðina og svo þurfa leikmenn líka að taka ábyrgð á sinni frammistöðu. Sameiginlega komumst við að niðurstöðu og höldum áfram á þriðjudaginn," sagði Arnar.
Hann segir að hveitibrauðsdögunum sé lokið.
„Ég er búinn að vera í fótbolta síðan ég var tveggja ára á mismunandi stigum og fylgist vel með hvað er að gerast. Þetta er úrslitabransi. Hveitibrauðsdögunum er lokið. Gamla góða vegferðarhjalið er bara búið núna. Sviðið er okkar. Við erum búnir að vera í undirbúningsfasa og höfum lagt grunnvinnuna. Það er búið að reisa húsið. Núna þurfa úrslitin að fylgja. Við spyrjum að leikslokum, hvernig riðillinn endar. Ég veit að mun koma gagnrýni þrátt fyrir að við vinnum riðilinn út af því hvernig andstæðingarnir eru. Landsliðsfótbolti er hrikalega erfiður. Það hefur komið mér á óvart. Þetta eru erfiðir leikir. Þessi byrjun er mjög slök og það er okkar að sjá til þess að þetta gerist ekki aftur."
Arnar segir að liðið sé ekki komið aftur á byrjunarreit eftir þessi úrslit en frammistaðan í leiknum í kvöld sé vissulega áhyggjuefni og hana verði að greina.
„Ég finn fyrir pressunni alla daga og hún er mjög skemmtileg. Það á enginn að vera ánægður með þessi úrslit. Ef það væri skoðanakönnun á eftir, þá myndi ég örugglega kjósa sjálfan mig í burtu eftir svona leik. Það er bara þannig. Svona er þessi leikur. Ég fagna því. Það er ósköp skiljanlegt. Sem betur fer kemur sólin upp á morgun. Það er stutt í næsta leik sem ég fagna. Öll umræða og gagnrýni, við eigum ekkert annað skilið eftir svona leik en allt það versta frá öllum."

Ísland fagnar marki.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hákon Rafn bjargaði íslenska liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland hefur aðeins unnið þrjá af 16 leikjum síðan Arnar tók við.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Úr leik dagsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland spilar næst við Lúxemborg.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Arnar brúnaþungur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
