Fotbolti.net
26.09.26 - 19:50
Magnús Atlason

Ísak Snær: Eigum bara að vinna þetta

Auglýsing
Ísak Snær Þorvaldsson

Ísak Snær Þorvaldsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland gerði afar svekkjandi 1-1 jafntefli við Eistland nú í dag. Fótbolti.net náði tali af Ísaki Snæ Þorvaldssyni sem spilaði sinn fyrsta keppnisleik fyrir A-landsliðið í dag.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Eistland
"Svekktur, pirraður. Þetta er leikur sem átti náttúrulega alls ekki að fara 1-1 jafntefli. Eigum bara að vinna þetta."

Ísak gerðist brotlegur innan teigs og víti var dæmt sem Hákon Rafn Valdimarsson sá við.

"Ég var náttúrulega bara að hreinsa boltann og hann nær að setja löppina þarna á milli, man ekki alveg eftir þessu, og fer í hann, það er bara þannig."


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.