Elliði og Dalvík/Reynir unnu sína leiki í B-deild Lengjubikarsins í dag.
Elliði vann 4-0 sigur á Ægi eftir að hafa leitt 1-0 í hléi. Þeir Aron Breki og Benedikt Daríus skoruðu sitthvora tvennuna.
Fyrir austan vann Dalvík/Reynir útisigur á Fjarðabyggð eftir að hafa lent 1-0 undir og staðan var þannig í hléi. Þeir Jóhann Örn og Gunnlaugur Rafn skoruðu mörk Norðanmanna í seinni hálfleiknum.

Elliði 4 - 0 Ægir (Riðill 1)
1-0 Aron Breki Aronsson
2-0 Benedikt Daríus Garðarsson
3-0 Aron Breki Aronsson
4-0 Benedikt Daríus Garðarsson
Fjarðabyggð 1 - 2 Dalvík/Reynir (Riðill 4)
1-0 Stefán Bjarki Cekic
1-1 Jóhann Örn Sigurjónsson
1-2 Gunnlaugur Rafn Ingvarsson
Athugasemdir