27.02.26 - 17:15
Elvar Geir Magnússon
Doku mættur aftur til æfinga - Ramadan hefur ekki áhrif á liðsval

Doku bendir til himins.

Mynd: EPA

Doku bendir til himins.

Mynd: EPA
Jeremy Doku er mættur aftur til æfinga, þetta staðfesti Pep Guardiola stjóri Manchester City á fréttamannafundi í dag en gaf ekkert upp um það hvort belgíski kantmaðurinn væri klár í að vera með gegn Leeds United um helgina.
City leikur á Elland Road á morgun og með sigri verður liðið aðeins tveimur stigum frá toppliði Arsenal. Þeir ljósbláu hafa farið í gegnum átta leiki í röð í öllum keppnum án ósigurs.
City leikur á Elland Road á morgun og með sigri verður liðið aðeins tveimur stigum frá toppliði Arsenal. Þeir ljósbláu hafa farið í gegnum átta leiki í röð í öllum keppnum án ósigurs.
Doku hefur verið fjarverandi síðan í sigri gegn Galatasaray í Meistaradeildinni seint í janúar vegna meiðsla í kálfa.
„Hann mætti aftur til æfinga í gær," sagði Guardiola sem var í kjölfarið spurður um mögulega þátttöku leikmannsins á morgun? „Ég veit það ekki. Við ræðum við læknana."
Vita hvernig þeir höndla þetta
Ýmislegt kom við sögu á fréttamannafundi Guardiola, þar á meðal föstumánuður Múslima.
City er með ansi marga múslima í leikmannahópi sínum en nú er Ramadan í gangi og þeir fasta á meðan sólin er á lofti. Guardiola segir að þetta hafi engin áhrif á liðsval sitt.
„Við erum með góða næringarfræðinga og þetta er allt vel skipulagt. Leikmennirnir eru vanir því að spila í gegnum þetta tímabil. Þeir vita hvernig þeir eiga að höndla það," segir Guardiola.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 8 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 9 | Leeds | 7 | +3 | 10 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 7 | -8 | 4 |