Einkunnir Wolves og Villa: Joao Gomes hetjan

Mynd: Wolves

Mynd: EPA

Mynd: Wolves
Botnlið Wolves vann afar óvæntan sigur á meistaradeildarbaráttuliði Aston Villa er liðin mættust í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.
Leikurinn var nokkuð jafn en það voru Úlfarnir sem höfðu betur að lokum. Vanalega tapa þeir öllum leikjum þar sem jafnræði ríkir en í kvöld var sagan önnur.
Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir slag kvöldsins og var Joao Gomes valinn sem besti leikmaður vallarins. Hann kom aftur í byrjunarliðið eftir tveggja leikja fjarveru og kórónaði frábæra frammistöðu með marki.
Sky velur engan sérstakan skúrk í liði Aston Villa, þess í stað fær hálft liðið 5 í einkunn fyrir sinn þátt í tapinu. Enginn leikmaður Úlfanna fær undir 7 í einkunn nema Jose Sá markvörður og Tolu Arokodare sem kom inn af bekknum.
Rodrigo Gomes sem kom inn af bekknum í uppbótartíma og skoraði eftir skyndisókn spilaði ekki nóg til að fá einkunn hjá Sky.
Wolves: Sa (6), Tchatchoua (7), Mosquera (7), S Bueno (7), Toti (7), H Bueno (7), Andre (8), J Gomes (9), Bellegarde (7), Mane (7), Armstrong (8).
Varamaður: Arokodare (6)
Aston Villa: Martinez (5), Cash (5), Konsa (6), Torres (6), Digne (5), Onana (6), Luiz (6), Sancho (6), Buendia (5), Rogers (6), Watkins (5).
Varamenn: Bailey (5), Barkley (6), Maatsen (6), Abraham (6)