Fotbolti.net
27.02.26 - 11:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emery án fimm manna - Líka góðar fréttir

Elliott er einn af fimm sem Emery hefur ekki til taks í kvöld.

Elliott er einn af fimm sem Emery hefur ekki til taks í kvöld.

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa verður án fimm leikmanna þegar liðið mætir Wolves í kvöld.

Fyrirliðinn John McGinn glímir við hnémeiðsli, Youri Tielemans er meiddur á ökkla, Boubacar Kamara spilar ekki meira á tímabilinu, Harvey Elliott verður ekki til taks og þá er greint frá því að varnarmaðurinn Andres Garcia sé að glíma við meiðsli í læri sem hann varð fyrir á æfingu.

Garcia hefur lítið spilað frá komu sinni í janúar í fyrra, einungis spilað í fimmtán leikjum. Hann er hægri bakvörður og í samkeppni við Matty Cash sem var að snúa til baka úr hnémeiðslum.

Aston Villa vill ekki spila Elliott í úrvalsdeildinni því þá þarf félagið að kaupa hann frá Liverpool á 35 milljónir punda. Hann hefur spilað í sjö úrvalsdeildarleikjum til þessa. Við tíunda spilaða leikinn þarf Villa að klára kaupin á honum.
Unai Emery, stjóri Aston Villa, sagði á fréttamannafundi í gær að Alysson, sem félagið keypti í janúar, væri að snúa til baka og að öllu óbreyttu verður hann í hópnum gegn Wolves.

Alysson er 19 ára brasilískur hægri kantmaður sem kom frá Gremio í glugganum. Hann lék sínar fyrstu mínútur gegn Brighton fyrir tveimur vikum síðan.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.