Fotbolti.net
27.02.26 - 19:59
Ívan Guðjón Baldursson

Emery: Verður erfitt að halda þriðja sætinu

Emery: Verður erfitt að halda þriðja sætinu
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery þjálfari Aston Villa svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær fyrir leik liðsins á útivelli gegn botnliði Wolves sem er að hefjast í þessu.
Emery talaði um stöðu Aston Villa í úrvalsdeildinni þar sem liðið situr í þriðja sæti, tíu stigum á eftir toppliði Arsenal en með leik til góða. Liðið er þó aðeins þremur stigum fyrir ofan Manchester United og sex stigum fyrir ofan Chelsea á stöðutöflunni.

„Ég veit að það verður erfitt að halda þriðja sætinu, við erum að berjast við United, Chelsea og Liverpool sem eru öll með í forgangi hjá sér að ná þriðja sætinu. Þau eru stór og valdamikil félög og það verður áskorun fyrir okkur að halda forystunni út tímabilið. Þetta verða mjög spennandi lokametrar," sagði Emery, sem er ekki að horfa upp töfluna.

„Við erum í harðri baráttu um meistaradeildarsæti og það er mikilvægt að njóta þess. Það er mikilvægt að strákarnir njóti stundarinnar, að þeir njóti þess að mæta á æfingar og undirbúa næsta leik. Þetta verður hörð barátta og það getur allt gerst, við erum svo tilbúnir í þetta. Þetta verður mjög erfitt.

„Leikurinn gegn Wolves verður líka mjög erfiður, við munum eftir síðasta leik sem við spiluðum hérna og vorum mjög heppnir að vinna. Við áttum ekki skilið að vinna þá viðureign, þeir voru sterkara liðið. Ég man svona vel eftir þessu útaf því að þeir töpuðu fleiri leikjum með svipuðum hætti á sama tíma, þeir voru ótrúlega óheppnir til dæmis í leikjum sínum gegn Bournemouth og Chelsea.

„Í síðasta heimaleik gerðu þeir jafntefli gegn Arsenal sem er besta lið í úrvalsdeildinni og mögulega í heiminum. Svo áttu þeir skilið að vinna í síðustu umferð þegar þeir töpuðu gegn Palace. Þetta verður ekki auðveldur leikur."


Emery segir að leikmenn sínir átti sig fyllilega á því hversu erfiður leikurinn verður gegn Úlfunum, en Villa spilar svo heimaleik við Chelsea í næstu umferð áður en liðið mætir Lille í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Byrjunarlið Wolves og Villa: Sancho kemur inn
TENGT EFNI

Byrjunarlið Wolves og Villa: Sancho kemur inn

Emery: Verður erfitt að halda þriðja sætinu
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.