Fotbolti.net
27.02.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England um helgina - Chelsea heimsækir topplið Arsenal

Arsenal mætir Chelsea

Arsenal mætir Chelsea

Canon

Mynd: EPA

Um helgina fer fram 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Í kvöld tekur botnlið Wolves á móti Aston Villa á Molineux-leikvanginum í Wolverhampton.

Villa er í þriðja sæti með 51 stig, fimm stigum frá Manchester City á meðan Wolves er með aðeins 10 stig á botninum. Aðeins tímapursmál er hvenær Wolves mun falla en það eru ágætis líkur á að það verði staðfest í næsta mánuði.

Á morgun eru fimm leikir. Bournemouth mætir Sunderland klukkan 12:30 og svo hefjast þrír leikir klukkan 15:00. Englandsmeistarar Liverpool mæta West Ham á Anfield, Burnley tekur á móti Brentford og þá spilar Newcastle við Everton.

Klukkan 17:30 mætast Leeds og Man City. Lærisveinar Pep Guardiola þurfa sigur til að halda í við Arsenal í titilbaráttunni.

Á sunnudag eru fjórir leikir. Tottenham er komið í fallbaráttu en liðið heimsækir Fulham klukkan 14:00.

Á sama tíma mætast Man Utd og Crystal Palace á Old Trafford og þá spilar Brighton við Nottingham Forest.

Arsenal og Chelsea mætast síðan í stórleik helgarinnar klukkan 16:30 á Emirates-leikvanginum. Mikel Arteta og hans menn mega ekki við því að tapa stigum í titilbaráttunni. Arsenal er á toppnum með 61 stig, fimm stigum meira en Man City, en Chelsea er í 5. sæti með 45 stig.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
20:00 Wolves - Aston Villa

Laugardagur:
12:30 Bournemouth - Sunderland
15:00 Liverpool - West Ham
15:00 Burnley - Brentford
15:00 Newcastle - Everton
17:30 Leeds - Man City

Sunnudagur:
14:00 Fulham - Tottenham
14:00 Man Utd - Crystal Palace
14:00 Brighton - Nott. Forest
16:30 Arsenal - Chelsea

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.