Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 11:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Á meira eftir af samningnum en talið var - „Enginn tími fyrir truflanir."
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Anthony Gordon er í dag orðaður við Arsenal og sagt að Lundúnarfélagið vonist til að geta fengið hann á 75 milljónir punda. Margir miðlar hafa fjallað um Gordon og hefur verið gengið út frá því í umfjöllun að hann sé með lausan samning sumarið 2028.

Sky Sports greinir frá því að Gordon sé samningsbundinn til sumarsins 2030, tveimur árum lengur en greint hefur frá.

Gordon er 25 ára og verður 29 ára þegar samningurinn rennur út. Hann var keyptur frá Everton sumarið 2023 og hefur verið í lykilhlutverki hjá Newcastle. Gordon skrifaði undir framlengingu á samningi sínum í október 2024.

Eddie Howe, stjóri Newcastle, var spurður út í Gordon á fréttamannafundi í dag.

„Bara ef þú lest það þannig að þetta sé truflandi fyrir hann," sagði Howe aðspurður hvort fréttir um áhuga Arsenal gætu truflað leikmanninn.

„Eins og alltf á þessum aldri, þá eru sögusagnir og vangaveltur. Ég sé ekki 90% af þessu. Þetta fylgir því að vera toppleikmaður og þú þarft að ná þessu úr heilanum og spila fótbolta."

„Það er enginn tími fyrir truflanir."


Howe var spurður hvort að félagið gæti komið í veg fyrir að endurtaka það sem átti sér stað síðasta sumar með Alexander Isak þar sem hann var þrálátlega orðaður í burtu allt sumarið og fór á endanum til Liverpool.

„Það er ekki mikið sem ég get gert í því. Þetta (áhugi Arsenal) eru fréttir fyrir mér, en við erum á miðju tímabili og hann að spila nokkra af stærstu leikjum ferilsins þessa dagana. Það er enginn tími til að líta til hægri eða vinstri, hann verður að halda einbeitingunni á því sem er fyrir framan hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner