Fotbolti.net
27.02.26 - 18:05
Kári Snorrason

Tvísýnt með Oumar Diouck - Með rifu í krossbandi og slitið liðband

Oumar Diouck skoraði 15 mörk í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Oumar Diouck skoraði 15 mörk í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Oumar Diouck, markahæsti leikmaður Njarðvíkur á síðasta tímabili, meiddist illa á hné í leik gegn KA í Lengjubikarnum um síðustu helgi. Hann fór nýverið í myndatöku sem sýndi rifu í fremra krossbandi og slitið liðband.
Fyrirliði Njarðvíkur sleit krossband og missir af öllu tímabilinu
TENGT EFNI

Fyrirliði Njarðvíkur sleit krossband og missir af öllu tímabilinu

Belginn bíður nú eftir niðurstöðum frá læknum sem meta hvort að hann þurfi að gangast undir aðgerð eða ekki. Ef hann þarf ekki að fara í aðgerð er reiknað með að hann verði frá í sex til tólf vikur.

Ef þörf verður á aðgerð má hins vegar gera ráð fyrir að hann missi af komandi tímabili í Lengjudeildinni.

Þessi tíðindi bæta gráu ofan á svart fyrir Njarðvíkinga en í sama leik varð Tómas Bjarki Jónsson, fyrirliði Njarðvíkur, fyrir því óláni að slíta krossband og verður hann frá allt tímabilið.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.