Fotbolti.net
27.03.21 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jamie McDonough þjálfar Tindastól ekki áfram (Staðfest)

Jamie McDonough þjálfar Tindastól ekki áfram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfarinn Jamie McDonough og Tindastóll hafa komist að samkomulagi um að slíta samstarfi sínu.
McDonough var ráðinn sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Tindastóli árið 2019 og í fyrra hafnaði liðið í sjöunda sæti undir hans stjórn.

Tindastóll fer inn í þetta tímabil með nýjan þjálfara en það er afar stutt í mót, það er að segja ef allt gengur eftir plani.

Yfirlýsing frá Tindastól
Knattspyrnudeild Tindastóls og Jamie McDonough hafa komist að samkomulagi um starfslok Jamie hjá félaginu. Jamie starfaði sem þjálfari meistaraflokks karla og var yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu.

Knattspyrnudeild Tindastóls þakkar Jamie fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.