Fotbolti.net
27.05.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Henderson: Verður skrýtið ef við vinnum titilinn án áhorfenda

Henderson: Verður skrýtið ef við vinnum titilinn án áhorfenda
Canon

Mynd: Getty Images

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, segir að það verði skrýtin tilfinning ef að liðið tekur á móti enska meistaratitlinum fyrir framan enga áhorfendur.

Reiknað er með að keppni í ensku úrvalsdeildinni hefjist aftur í næsta mánuði en leikið verður fyrir luktum dyrum.

„Auðvitað verður þetta öðruvísi. Ef við vinnum titilinn og það verða engir áhorfendur þá verður það frekar skrýtið," sagði Henderson í viðtali við BBC.
„En sem leikmaður þá þurfum við að einbeita okkur að því sem er mikilvægt og eins leiðinlega og það hljómar þá er það að taka einn leik fyrir í einu og reyna að byrja að spila leiki aftur og gera okkar besta."

„Þetta er ekki ennþá búið. Við eigum ennþá verk að vinna og við þurfum ennþá að standa okkur vel á meðal þeirra bestu til loka tímabils."

„Þegar við tölum um bikarinn og að áhorfendur verði ekki þar þá verðum við að takast á við það þegar að því kemur."

„Þegar stuðningsmenn mega mæta aftur á völlinn þá er ég viss um að við munum taka einhver fagnaðarlæti saman."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.