Fotbolti.net
27.05.25 - 11:54
Elvar Geir Magnússon

McTominay hitti nýja páfann

Scott McTominay og Leó páfi.

Scott McTominay og Leó páfi.

Canon

Mynd: EPA

Napoli tryggði sér ítalska meistaratitilinn á föstudaginn og í morgun fór liðið og heimsótti páfann í Vatikaninu.

Bandaríkjamaðurinn Robert Prevost var fyrr í þessum mánuði valinn nýr páfi og tók hann upp páfanafnið Leó.
McTominay mikilvægasti leikmaður ítölsku deildarinnar
TENGT EFNI

McTominay mikilvægasti leikmaður ítölsku deildarinnar

Það var létt yfir Leó páfa og hann grínaðist með að hann hefði haldið að leikmennirnir vildu ekki hitta sig eftir að opinberað var í fjölmiðlum að hann heldur með Roma. Myndband náðist af honum segja 'Forza Roma!' við stuðningsmann.

Páfinn hélt stutta ræðu þar sem hann talaði um mikilvægi liðsheildarinnar og óskaði Napoli til hamingju með titilinn. Leikmenn tóku í höndina á páfanum, þar á meðal Scott McTominay sem kom til Napoli frá Manchester United síðasta sumar og var einn besti leikmaður ítölsku deildarinnar.

Mikil gleði ríkir í Napólíborg og um 200 þúsund stuðningsmenn fögnuðu á sérstakri sigurhátíð á götum borgarinnar í gær.
Aurelio De Laurentiis forseti Napoli færði Leó páfa sérmerkta og áritaða treyju.

Aurelio De Laurentiis forseti Napoli færði Leó páfa sérmerkta og áritaða treyju.

Canon

Mynd: EPA

Antonio Conte, stjóri Napoli, og Leó páfi.

Antonio Conte, stjóri Napoli, og Leó páfi.

Canon

Mynd: EPA

McTominay hitti nýja páfann
Canon

Mynd: EPA

McTominay hitti nýja páfann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.