Fotbolti.net
31.08.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Camara gæti farið til Chelsea ef City kaupir Enzo

Camara gæti farið til Chelsea ef City kaupir Enzo.

Camara gæti farið til Chelsea ef City kaupir Enzo.

Canon

Mynd: EPA

Ef Chelsea selur Enzo Fernandez til Manchester City gæti það rutt brautina fyrir miðjumanninn Lamine Camara til að ganga til liðs við Chelsea frá Mónakó í hans stað.

Camara gæti orðið þrettándi leikmaðurinn sem Chelsea fær til sín í glugganum.

Camara er 22 ára landsliðsmaður Senegal sem gerði flotta hluti í frönsku deildinni á síðustu leiktíð. Hann á 49 landsleiki að baki þrátt fyrir ungan aldur.
Stóru málin rétt áður en glugginn lokast
TENGT EFNI

Stóru málin rétt áður en glugginn lokast

Enzo Fernandez var ekki með Chelsea í sigrinum gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær og mikil óvissa ríkir um framtíð hans, en orðrómur hefur verið á kreiki um stór félagaskipti til Manchester City.

Enzo Maresca vann með þessum argentínska miðjumanni hjá Chelsea og vill tyrkja hópinn eftir að Rodri, Bernardo Silva, Nico Gonzalez og Tijjani Reijnders yfirgáfu félagið í sumar.

Ef af félagaskiptum yrði, væri líklega um að ræða dýrustu kaup í sögu City, sem myndu slá við þeim 116 milljónum punda sem greiddar voru fyrir Elliot Anderson fyrr í sumar.
Enzo Fernandez.

Enzo Fernandez.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.