Fotbolti.net
31.08.26 - 09:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jón Sölvi lánaður til Lyngby (Staðfest)

Jón Sölvi lánaður til Lyngby (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unglingalandsliðsmarkvörðurinn Jón Sölvi Símonarson hefur verið lánaður til danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby frá ÍA.

Lánið gildir út þetta ár og í kjölfarið verður tekin ákvörðun um hvort Lyngby kaupi Jón Sölva eða ekki.

Hann er fæddur árið 2007, á að baki 21 leik fyrir yngri landslið Íslands og spilaði átta leiki með ÍA í Bestu deildinni í sumar.

Hjá Lyngby hittir hann fyrir þá Ísak Snæ Þorvaldsson (fyrrum leikmann ÍA), Daníel Frey Kristjánsson og Davíð Helga Aronsson (sem er á láni frá Víkingi). Valdimar Valdimarsson er markmannsþjálfari í akademíu Lyngby en hann starfaði áður hjá Breiðabliki sem er uppeldisfélag Jón Sölva.
Tilkynning ÍA
Jón Sölvi kom fyrst til ÍA á láni frá Breiðabliki sumarið 2025 áður en hann gekk svo varanlega til liðs við félagið fyrr í sumar. Hann stóð sig frábærlega í marki Skagamanna þegar hann kom inn í liðið í fjarveru Árna Marinó og fær nú verðskuldað tækifæri til að taka næsta skref á sínum ferli.

Við óskum Jóni Sölva alls hins besta í Danmörku og góðs gengis í komandi verkefni með Lyngby!
Jón Sölvi lánaður til Lyngby (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.