31.08.26 - 08:20
Elvar Geir Magnússon
Ívar Orri dæmir stórleik KR og Víkings

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er beðið með mikilli eftirvæntingu eftir leik KR og Víkings í Bestu deildinni en leikurinn fer fram 17:30 á morgun. Með sigri hleypir KR spennu í titilbaráttuna.
Það gefur augaleið að einn færasti dómari landsins verður með flautuna en Ívar Orri Kristjánsson tekur það verkefni að vera aðaldómari.
Birkir Sigurðarson og Kristján Már Ólafs verða aðstoðardómarar og Pétur Guðmundsson er skráður fjórði dómari. Pétur fór reyndar meiddur af velli þegar hann dæmdi leik Vals og ÍA í gær og Elías Ingi Árnason tók við af honum. Spurning er hvort Pétur verði klár í að starfa á leiknum á morgun.

TENGT EFNI
Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða
Einn leikur verður í Bestu deildinni í kvöld. Elías Ingi dæmir leik Breiðabliks og Stjörnunnar og er því að fara að dæma í deildinni annan daginn í röð.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | Fram | 21 | +14 | 44 |
| 3 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 21 | -4 | 28 |
| 6 | ÍA | 21 | -4 | 27 |
| 7 | Valur | 21 | -7 | 24 |
| 8 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 9 | FH | 21 | -11 | 21 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 21 | -14 | 17 |