Fotbolti.net
31.08.26 - 10:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Held það sé augljóst að Markús Páll fer út í vetur" - Orðaður við Rosenborg

Verið frábær á tímabilinu

Verið frábær á tímabilinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Páll Ellertsson hefur átt virkilega gott tímabil með ÍA og skoraði í gær sitt ellefta deildarmark í sumar þegar ÍA náði jafntefli gegn Val á útivelli. Hann skorði auk þess eitt mark í bikarnum. Markús skoraði fyrsta mark leiksins í gær eftir undirbúning frá Gísla Laxdal Unnarssyni.

Hann gerði fjögurra ára samning við ÍA síðasta vetur þegar hann kom frá ítalska félaginu Triestina.

Í Útvarpsþættinum Fótbolti.net var sagt frá því að norska félagið Rosenborg væri á meðal félaga sem hefði áhuga á Markúsi en þar er Alfreð Finnbogason yfirmaður fótboltamála og Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.

„Hann er einn eftirsóttasti leikmaður Íslands um þessar mundir, hann er búinn að vera frábær fyrir Skagann," sagði Elvar Geir í þættinum.
Dönsku félögin Lyngby og Silkeborg hafa einnig áhuga og svissnesku meistararnir í Thun.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var spurður út í Markús eftir leikinn í gær.

„Markús Páll náttúrulega fer út í vetur, eftir mót, ég held það sé alveg klárt mál. Ef ekki þá er það bara frábært, þá skorar hann enn meira fyrir okkur á næsta ári, en ég held það sé alveg augljóst að hann fer út," sagði þjálfarinn.

Markús Páll er tvítugur framherji sem uppalinn er hjá Fram. Hann á að baki fjóra leiki fyrir U19 landsliðið og er yngri bróðir landsliðsmannsins Mikaels Egils Ellertssonar sem spilar með Genoa.
„Held það sé augljóst að Markús Páll fer út í vetur" - Orðaður við Rosenborg
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.