
Það eru núna aðeins fimm dagar í fyrsta leik Íslands á fimmta Evrópumótinu í röð. Fyrsta stórmótið sem íslenskt landslið komst á var árið 2009, en það næsta var árið 2013 í Svíþjóð.
Þar sem við erum að fara á fimmta mótið í röð, er þá ekki vel við hæfi að rifja upp fyrri mót? Við byrjuðum á 2009 en núna er komið að mótinu 2013 þar sem við skrifuðum söguna enn frekar.
Þar sem við erum að fara á fimmta mótið í röð, er þá ekki vel við hæfi að rifja upp fyrri mót? Við byrjuðum á 2009 en núna er komið að mótinu 2013 þar sem við skrifuðum söguna enn frekar.
Japan varð heimsmeistari
Eftir að hafa komist í lokakeppni EM 2009, þá hófst undankeppni HM 2011. Það var rosalega erfitt að komast inn á það mót þar sem aðeins 16 lið tóku þátt og fimm þeirra komu frá Evrópu. Þýskaland voru gestgjafar og komust því beint inn á mótið en undankeppnin var þannig skipulögð að það voru átta riðlar og komust sigurvegararnir í hverjum riðli í umspil um sæti á mótinu.
Ísland var í öðrum styrkleikaflokki og dróst auðvitað í riðli með Frakklandi þegar dregið var í undanriðla; eftir að hafa verið með Frakklandi í riðli í undankeppni EM 2009, á lokamótinu sjálfu og svo aftur þarna.
Það fór þannig að Ísland vann alla leiki sína í riðlinum nema gegn Frakklandi en báðir leikirnir gegn Frökkum töpuðust.
Ísland vann alla hina leikina í riðlinum með markatöluna 30-0, en það dugði ekki til að komast neitt áfram og Ísland missti því af HM 2011. Það mót var virkilega skemmtilegt og endaði með því að Japan varð heimsmeistari eftir sigur á Bandaríkjunum í úrslitaleik. Þetta var fyrsti og eini heimsmeistaratitill Japana til þessa, en úrslitin voru nokkuð sjokkerandi.
Sluppum loksins við Frakkana
Þegar dregið var í riðla í undankeppni EM 2013, þá voru stórtíðindi því við drógumst ekki í riðil með Frökkum. Úr efsta styrkleikaflokki fengum við Noreg.
Riðill Íslands í undankeppni EM 2013:
Noregur
Ísland
Belgía
Ungverjaland
Norður-Írland
Búlgaría
Ísland byrjaði undankeppnina á því að mæta Búlgaríu á heimavelli og það var gríðarlega auðvelt verkefni. Margrét Lára Viðarsdóttir gerði fernu og Ísland vann 6-0 sigur. Hin mörkin gerðu Hólmfríður Magnúsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir.
Næsti leikur var á móti Noregi og var það algjör lykilleikur í riðlinum. Hólmfríður kom Íslandi yfir eftir aðeins níu mínútur og eftir hálftíma var staðan orðin 3-0 þar sem Fríða gerði annað mark og Margrét Lára skoraði úr víti. Ingvild Stensland minnkaði muninn fyrir Noreg en þær komust ekki lengra og Ísland var því komið í lykilstöðu í riðlinum. En að sama skapi voru bara tveir leikir búnir og nóg eftir. Það mættu rúmlega 3000 manns á Laugardalsvöll til að horfa á þennan leik en það mættu ekki fleiri á leik í riðlinum. Ísland var þarna í algjörum sérflokki þegar kom að áhorfendafjölda.
Íslenska liðið mætti svo Belgíu nokkrum dögum síðar á Laugardalsvelli, en við náðum ekki að fylgja geggjuðum sigri gegn Noregi eftir. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli.
Súrt að fara ekki beint áfram
Í október unnum við nauma sigra gegn Norður-Írlandi og Ungverjalandi á útivelli. En svo töpuðum við gegn Belgíu á útivelli, 1-0. Það var grátlegt tap sem setti okkur í vonda stöðu. Tessa Wullaert, sem er enn að spila fyrir Belgíu, skoraði markið. Ísland vann svo 10-0 sigur á útivelli í Búlgaríu þar sem Katrín Jónsdóttir, Sara Björk og Margrét Lára gerðu allar tvennur.
Fyrir lokaumferðina var Ísland með einu stigi meira en Noregur, en leikið var á Ullevaal Stadion. „Íslensku stelpurnar voru mun betri aðilinn í leiknum og var því gegn gang leiksins er Maren Mjelse kom Norðmönnum yfir á 39. mínútu og nýttu norsku stelpurnar það sér heldur betur og skoruðu annað rétt fyrir leikslok en þar var að verki Elise Thorsnes," skrifaði Brynjar Ingi Erluson í úrslitafrétt sinni frá leiknum.
Margrét Lára minnkaði muninn í seinni hálfleik, en meira var það ekki. Ísland tapaði 2-1 og þurfti að fara í umspil eftir að hafa verið í lykilstöðu til að vinna riðilinn. Jafnteflið gegn Belgíu fyrr í riðlinum sat eftir, og jú auðvitað tapið í Belgíu líka.
Áhorfendamet sett í Laugardalnum
Andstæðingurinn að þessu sinni var Úkraína sem endaði í öðru sæti í riðli sínum á eftir Finnlandi. Írlandsleikurinn heima í umspilinu fyrir EM 2009 situr rosalega eftir í minningunni út af skautasvellinu sem myndaðist á Laugardalsvelli, en leikirnir Úkraínu voru kannski ekki síður minnisstæðir.
Fyrri leikurinn fór fram í Úkraínu og þar kom Ísland sér í góða stöðu í einvíginu með því að vinna 2-3 sigur. Katrín Ómarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir komu Íslandi í 2-0 en Úkraína kom til baka og jafnaði. Margrét Lára var hins vegar hetjan eins og svo oft áður.
Það var þarna orðin gríðarleg stemning fyrir íslenska landsliðinu en Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, skrifaði fyrir heimaleikinn pistil þar sem hann hvatti áhorfendur til að fjölmenna á völlinn. Á köldu kvöldi í Laugardalnum í lok október var áhorfendametið slegið því 6647 áhorfendur mættu til að sjá Ísland tryggja sig inn á EM í annað sinn.
Margrét Lára gerði sitt ellefta mark í undankeppninni þegar hún kom Íslandi yfir snemma leiks. Þarna var hún á hátindi ferilsins og nýbúin að semja við Turbine Potsdam, sem var á þeim tíma besta félagslið í heimi. Ísland komst í 2-0, eins og í fyrri leiknum, en missti það aftur niður í 2-2. Dagný Brynjarsdóttir, sem er á leið á sitt fjórða stórmót í Sviss, gerði hins vegar sigurmarkið í lokin og gulltryggði sæti Ísland á EM.
„Engin spurning. Við slógum áhorfendametið. Það voru 5976 áður þannig við slógum það vel í dag og fyrsta skiptið þurfti að opna stúkuna hérna hinum megin, það er áfangi útaf fyrir sig, við fyllum hana seinna, við getum þetta," sagði Siggi Raggi í viðtali eftir leikinn.
Fyrsta mót Glódísar og Dagnýjar en Edda ekki valin
Svo var það EM í Svíþjóð 2013. Og aftur sluppum við Frakkana. Ótrúlegt en satt. Eins og 2009, þá voru tólf lið að taka þátt en Ísland dróst í þennan riðil:
Þýskaland
Noregur
Ísland
Holland
Þegar hópurinn var valinn í lok júní 2013, þá var mikið athyglisvert þar. Glódís Perla Viggósdóttir, sem er þrítug í dag, var þarna komin inn í landsliðið kornung og var á leiðinni á sitt fyrsta mót og það sama má segja um Dagnýju Brynjarsdóttur, sem er líka í hópnum í dag.
Það sem var samt athyglisverðast var að Edda Garðarsdóttir, sem hafði lengi verið í hópnum, var ekki valin.
Hópurinn á EM:
Katrín Jónsdóttir, Umea
Þóra Björg Helgadóttir, Malmö
Dóra María Lárusdóttir, Valur
Margrét Lára Viðarsdóttir, Kristianstad
Hólmfríður Magnúsdóttir, Avaldsnes
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, Chelsea
Sara Björk Gunnarsdóttir, Malmö
Katrín Ómarsdóttir, Liverpool
Rakel Hönnudóttir, Breiðablik
Sif Atladóttir, Kristianstad
Hallbera Guðný Gísladóttir, Pitea
Fanndís Friðriksdóttir, Kolbotn
Guðný Björk Óðinsdóttir, Kristanstad
Dagný Brynjarsdóttir, Valur
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjarnan
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Avaldsnes
Glódís Perla Viggósdóttir, Stjarnan
Þórunn Helga Jónsdóttir, Avaldsnes
Elísa Viðarsdóttir, ÍBV
Sandra Sigurðardóttir, Stjarnan
Elín Metta Jensen, Valur
Katrín Ásbjörnsdóttir, Þór
Anna Björg Kristjánsdóttir, Stjarnan
Það voru margir sem tóku ekki vel í ákvörðun Sigga Ragga að velja ekki Eddu í hópinn, en þetta var ákvörðun sem kom mikið á óvart. Landsliðsþjálfarinn fyrrverandi sagði nýverið í Systraslag, þáttum á RÚV, að það hefði verið farið að hægjast á Eddu og þess vegna hefði hann ekki valið hana.
Sagan skrifuð
Ísland hóf riðlakeppnina 11. júlí í Kalmar, gegn Noregi. Þær höfðu verið með okkur í riðli í undankeppnina og það voru tveir hörkuleikir. Þessi leikur í Kalmar byrjaði ekki vel fyrir okkur því Noregur tók forystuna um miðbik fyrri hálfleiks. Það stefndi allt í sigur Noregs fram að því að Margrét Lára jafnaði úr víti á 87. mínútu. Hún klikkaði á víti á EM 2009, en bætti þarna upp fyrir það.
Þetta var flott stig sem gaf okkur möguleika á því að gera eitthvað í þessum erfiða riðli. Næsti leikur var gegn Þýskalandi og það var aðeins erfiður biti. Célia Sacic (áður Okoyino da Mbabi) var fáránleg öflugur markaskorari á sínum ferli og hún gerði tvennu í þessum leik fyrir Þýskaland.
Ísland spilaði svo Holland í lokaleik í riðlinum en með sigri þar var möguleiki á því að komast áfram. Dagný Brynjarsdóttir ákvað að skrá sig á spjöld sögunnar því hún skoraði sigurmarkið með skalla eftir sendingu frá Hallberu Guðnýju Gísladóttur.
Nokkrum dögum áður var óttast að Dagný væri ristarbrotin og hún var borin út í rútu.
„Þetta er frábær tilfinning og ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja. Ég var alveg bjartsýn á það að koma aftur til baka eftir meiðslin. Læknarnir og sjúkraþjálfararnir voru ekki alveg eins bjartsýnir en þeir gerðu vel í að koma mér á völlinn í dag. Það er þeim að þakka," sagði Dagný við Vísi eftir leikinn.
Ísland vann þarna sinn fyrsta sigur á stórmóti, 1-0 gegn Hollandi sem átti eftir að verða Evrópumeistari fjórum árum síðar. Ísland fór upp úr riðlinum með góðan árangur í þriðja sæti Frábært afrek.
Ísland 1 - 1 Noregur
Ísland 0 - 3 Þýskaland
Ísland 1 - 0 Holland
Í átta-liða úrslitunum mættu okkar stelpur svo heimakonum í Svíþjóð og til að gera langa sögu stutta, þá voru þær of stór biti fyrir okkur á heimavelli. Stelpurnar höfðu lagt upp með að halda markinu hreinu í byrjun leiksins en Svíþjóð skoraði þrjú mörk á fyrstu 20 mínútunum og leikurinn búinn. Hann endaði svo 4-0.
Það voru andstæðingar Íslands úr riðlakeppninni sem mættust í úrslitum - Þýskaland og Noregur - en það voru Þjóðverjar sem höfðu betur og urðu Evrópumeistarar, alveg eins og 2009.
Siggi Raggi hætti eftir mótið
Ísland tók þarna næsta skref á stóra sviðinu með því að komast upp úr riðlinum í fyrsta sinn, en eftir mótið urðu breytingar í kringum íslenska liðið. Sigurður Ragnar Eyjólfsson sem hafði komið Íslandi á tvö stórmót hætti sem þjálfari liðsins og það var fjölmiðlafár í kringum það ef svo má segja.
Um miðjan ágúst birtist það í fjölmiðlum að fjórir leikmenn kvennalandsliðsins hefðu sent tölvupóst á Sigurð Ragnar og KSÍ þar sem farið var fram á þjálfaraskipti áður en Sigurður tók þá ákvörðun að láta af störfum.
„Það var misjafnt hvað leikmenn voru að gagnrýna við hans störf en mér þykir nokkuð einkennilegt að hann sé að fara með þetta í fjölmiðla," sagði Edda Garðarsdóttir sem var ein af fjórum leikmönnum sem var stíluð fyrir bréfinu. Hinar voru Þóra Björg Helgadóttir, Sif Atladóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir. Fjallað var meira um þetta mál í Systraslag á RÚV en það var augljóslega komin þreyta í samstarfið.
„Það var talað um það fyrir mót að þetta væri nú kannski orðið gott hjá honum og ég held að það séu bara allir sammála um það. Ég held að allir hafi samt gott af því að Sigurður fari að snúa sér að öðru núna," sagði Edda jafnframt og bætti við að hún væri ekki ánægð með Sigga Ragga fyrir að hafa tilkynnt sér það að hún væri ekki í lokahópnum fyrir EM með símtali.
Sigurður sagði þó að þetta hafi þó ekki haft nein áhrif á ákvörðun sína að halda ekki áfram með liðið.
„Það er ekki leikmanna að ákveða neitt um það. Það hafa alltaf verið einhverjir leikmenn ósáttir með sína stöðu, að þessu sinni voru einhverjir leikmenn óánægðir sem voru ósáttir með að hafa ekki spilað meira. Þetta voru reynslumiklir leikmenn, þetta var ekkert sem kom inn í mína ákvörðun. Mér fannst þetta komið gott," sagði Siggi Raggi en hann taldi vera kominn tími á nýja áskorun. Sagðist hann ganga stoltur og ánægður frá borði.
Næst munum við fjalla um EM 2017 og EM 2022 fyrir fyrsta leik Íslands á EM 2025 sem er næsta miðvikudag gegn Finnlandi.
Leikir Íslands á EM 2025:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir