Umferðin fór fram fyrir tæpum mánuði síðan.
Áki er á láni hjá Völsungi frá KA. Hann skoraði tvö mörk í 3-1 sigri liðsins á ÍR. Sverrir Mar Smárason og Óskar Smári ræddu um Áka í Ástríðunni.
„Hann var heldur betur illviðráðanlegur fyrir Breiðhyltingana," sagði Sverrir Mar Smárason í Ástríðunni.
„Hann á credit skilið fyrir frammistöðuna í sumar hingað til, verið góður í sumar," sagði Óskar Smári.
Þessi mörk voru hans sjötta og sjöunda hjá honum í sumar. Í dag er hann kominn með tólf mörk!
Fyrri leikmenn umferðarinnar:
1. umferð - Chico (ÍR)
2. umferð - Magnús Þórir Matthíasson (Njarðvík)
3. umferð - Kristófer Óskar Óskarsson (Magni)
4. umferð - Sævar Gylfason (KF)
5. umferð - Izaro (Þróttur)
6. umferð - Dimitrije Cokic (Ægir)
7. umferð - Úlfur Ágúst Björnsson (Njarðvík)
8. umferð - Úlfur Ágúst Björnsson (Njarðvík)